Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Vetrarmýri - miðsvæði

Íslandsbanki, fyrir hönd Garðabæjar, auglýsir til sölu byggingarrétt fyrir fjölbýlis- og atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum byggingarreitum við Vetrarmýri í Garðabæ.


Vetrarmýri er 20 hektara byggingaland, að fullu í eigu Garðabæjar, sem markast af Hnoðraholti til norðurs, Reykjanesbraut til vesturs, Vífilsstaðavegi til suðurs og golfvelli GKG til austurs.

Áætluð heildarstærð byggðar í Vetrarmýri er um 66.000 fermetrar af fjölbýli og 36.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði með 664 íbúðum að hámarki. Í þessum fyrsta áfanga eru boðnir út u.þ.b. 26.000 fermetrar af fjölbýli og 26.000 fermetrar af atvinnuhúsnæði á fimm aðskildum reitum auk möguleika fyrir bjóðendur í atvinnuhúsnæði að bjóða í bílastæðahús við Reykjanesbraut.

Samgöngumiðað svæði  í nálægð við náttúruperlur

Vetrarmýri er eitt af þremur fyrirhuguðum uppbyggingarsvæðum á Vífilstaðalandi. Við gerð deiliskipulagsins var horft til góðra tenginga við stofnbrautina Reykjanesbraut, almenningssamgöngur og göngu- og hjólastíga og nálægar við útivistarperlur. Auk þess er aðgengi að nálægri samfélagsþjónustu eins og skólum, leikskólum, íþróttamannvirkjum o.fl. mjög gott. Frekari upplýsingar um deiliskipulag og uppbyggingu svæðisins má nálgast á vef Garðabæjar. Í fyrsta áfanga söluferlis á byggingaréttum í Vetrarmýri eru boðnir út fimm aðskildir reitir eða u.þ.b. 26.000 m2af fjölbýli og 26.000 m2af atvinnuhúsnæði

Óskað er eftir tilboðum fyrir klukkan 13:00 þriðjudaginn 30. nóvember 2021.

Áhugasamir tilboðsgjafar geta nálgast sölugögn á útboðsvef Garðabæjar.

Öllum fyrirspurnum skal beint í gegnum netfangið vetrarmyri@islandsbanki.is og kauptilboðum skal skila í lokuðu umslagi til móttöku Íslandsbanka, 9. hæð, Hagasmára 3, 201 Kópavogi innan ofangreinds tilboðsfrests.

Tilboð verða opnuð kl. 13:30 sama dag á skrifstofu Íslandsbanka, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.