Vísitala neysluverðs (VNV) hækkaði um 0,81% í apríl samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólga hjaðnar úr 5,4% í 5,2%. Verðbólga miðað við vísitölu neysluverðs án húsnæðis hjaðnaði einnig úr 4,9% í 4,8%.
Mælingin reyndist lítillega yfir okkar spá. Við spáðum 0,7% hækkun vísitölunnar, en spár voru á bilinu 0,7% – 1,1%. Helsti munur á okkar spá og mælingunni skýrist af því að reiknuð húsaleiga hækkaði meira við höfðum gert ráð fyrir. Athyglisvert er jafnframt að margir helstu flokkar vísitölunnar, eins og matvörur, húsbúnaður og fatnaður, breytist lítið í verði á milli mánaða.

