Við spáum því að vísitala neysluverðs (VNV) hækki um 0,45% í október frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir mun ársverðbólga haldast óbreytt í 5,9%. Við spáum nú meiri hækkunum milli mánaða en í bráðabirgðaspá okkar, sem skýrist fyrst og fremst af meiri hækkun eldsneytisverðs en áður var gert ráð fyrir. Hagstofan birtir vísitölu neysluverðs þann 29. október næstkomandi.
Verðbólguspá: Verðbólga gefur ekkert eftir
Verðbólga verður áfram þrálát út árið og þróun olíuverðs skapar nokkra óvissu um skammtímahorfurnar. Eftir áramót eru hins vegar horfur á hraðari hjöðnun og að verðbólga nálgist efri vikmörk verðbólgumarkmiðsins á næsta ári.
Eldsneytisverð knýr hækkunina
Eldsneyti hefur mest áhrif til hækkunar í októberspánni. Við spáum því að eldsneytisverð hækki um 7,8% á milli mánaða (0,24% áhrif á VNV). Það er meiri hækkun en við gerðum ráð fyrir í bráðabirgðaspánni. Hráolíu- og bensínverð á heimsmarkaði hefur hækkað talsvert undanfarna mánuði og áhrifa þeirrar þróunar er þegar farið að gæta í verði á dælunni hérlendis. Eldsneytisverð hækkaði talsvert í síðasta mánuði og meira en skýra mátti með hækkun virðisaukaskatts einni saman. Óvissa er um áframhaldandi þróun heimsmarkaðsverðs. Haldi verð áfram að hækka eða verði það áfram hátt gætu áhrifin með tímanum komið fram í fleiri undirliðum vísitölunnar.
Flugverð hækkar einnig á milli mánaða. Samkvæmt mælingu okkar hækkar flugverð um 1,4% (0,04% áhrif á VNV). Lítið þarf út af að bregða til að flugverð hækki meira en ella á næstu mánuðum vegna hærra verðs á þotueldsneyti. Á móti vegur minni eftirspurn eftir flugi þegar lengra líður frá háannatíma í ferðaþjónustunni.
Komugjöld hækka heilsuliðinn
Heilsuliðurinn hækkaði nokkuð í síðasta mánuði vegna hækkunar á komugjöldum í heilsugæslu. Við búumst við að liðurinn hækki áfram nú í október, þar sem sams konar breytingar á komugjöldum í sjúkraþjálfun, talþjálfun og iðjuþjálfun koma inn í mælinguna samkvæmt Hagstofunni. Við spáum því að liðurinn heilsa hækki um 1,1% (0,04% áhrif á VNV).
Lækkar matvöruverð?
Nokkrar af stærstu dagvöruverslunum landsins hafa að undanförnu boðað verðfrystingar eða verðlækkanir fram að áramótum. Áhrif aðgerðanna á vísitölu neysluverðs ráðast meðal annars af því hvort viðkomandi vörur séu mældar í verðkönnun Hagstofunnar og vægi þeirra í neyslukörfunni. Við teljum að aðgerðirnar ættu að halda aftur af verðhækkunum á matar- og drykkjarlið vísitölunnar og draga þannig úr verðþrýstingi á næstu mánuðum. Dagvöruvísitala ASÍ bendir þó til 0,52% hækkunar á vörukörfunni milli mánaða. Þar vegur töluverð hækkun hjá Nettó þungt, eftir verðlækkun þar í síðasta mánuði. Sé horft fram hjá þessum sveiflum eru verðbreytingar á milli mánaða hins vegar almennt litlar. Við spáum því að matar- og drykkjarliður vísitölunnar standi nánast í stað á milli mánaða.
Reiknuð húsaleiga á sínum stað
Ekki má gleyma reiknuðu húsaleigunni sem er á sínum stað enda vegur hún þungt í vísitölu neysluverðs. Við spáum að hún hækki um 0,4% milli mánaða sem er svipuð hækkun og í síðasta mánuði. Lítið þarf út af að bregða til að hún hækki meira og þá gæti verðbólga mælst meiri en hér er spáð.
Verðbólguhorfur
Eftir verðmælingu í októbermánuði mun ársverðbólga reynast lítillega meiri næstu mánuði en áður var spáð. Í janúar mun hún þó hjaðna hraðar, meðal annars vegna hóflegri hækkana á krónutölugjöldum og gjaldskrám hins opinbera en áður var vænst vegna aðkomu stjórnvalda að nýlegri endurskoðun kjarasamninga.
- Nóvember: 0,4% lækkun VNV (6,0% ársverðbólga) – Dagur einhleypra lendir í verðsöfnunarviku Hagstofunnar og flugfargjöld lækka. Á móti hækkar eldsneytisverð, en þó minna en í október.
- Desember: 0,85% hækkun VNV (5,7% ársverðbólga) – Áhrif afsláttardaga ganga að mestu til baka og flugfargjöld hækka árstíðarbundið. Eldsneytisverð stendur í stað.
- Janúar: 0,1% lækkun VNV (5,2% ársverðbólga) – Hækkanir krónutölugjalda og gjaldskráa hjá opinberum aðilum. Kílómetragjald hækkar. Útsölur og lækkun flugfargjalda vega á móti.
Ef horft er lengra fram í tímann er útlit fyrir að verðbólga hjaðni áfram og verði nálægt 4%, sem eru efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans, á næsta ári. Spáin er þó bundin töluverðri óvissu. Um þessar mundir snýr óvissan ekki síst að þróun olíuverðs og því hvort það haldi áfram að hækka eða haldist hátt til lengri tíma.
Höfundar
Lagalegur fyrirvari
Skýrsla þessi er tekin saman af Greiningu Íslandsbanka hf. (Íslandsbanki).
Upplýsingar í skýrslu þessari eru upprunnar frá innlendum og erlendum upplýsinga- og fréttaveitum, sem taldar eru áreiðanlegar, ásamt opinberum upplýsingum, eigin úrvinnslu Greiningar og mati á hverjum tíma. Upplýsingarnar hafa ekki verið kannaðar sjálfstætt af Íslandsbanka og ábyrgist bankinn ekki nákvæmni upplýsinganna, áreiðanleika eða réttmæti þeirra. Skoðanir höfunda geta breyst án fyrirvara og ber Íslandsbanka ekki skylda til að uppfæra, lagfæra eða breyta skýrslunni við breyttar forsendur.
Skýrslan er einungis birt í upplýsingaskyni og skal því ekki litið á hana sem ráðleggingu/ráðgjöf um að ráðast eða ráðast ekki í tiltekna fjárfestingu eða tilboð um að kaupa, selja eða skrá sig fyrir tilteknum fjármálagerningum. Íslandsbanki og starfsmenn bankans bera ekki ábyrgð á viðskiptum sem kunna að vera gerð á grundvelli þeirra upplýsinga sem fram koma í skýrslunni. Þeim aðilum sem hafa hug á viðskiptum er bent á að leita sér sérfræðilegrar ráðleggingar og kynna sér vel hina ýmsu fjárfestingarkosti sem í boði eru. Fjárfestingum fylgir ávallt fjárhagsleg áhætta og ber m.a. að hafa í huga áhættu vegna alþjóðlegra fjárfestinga og gengisflökts gjaldmiðla. Fjárfestingamarkmið og fjárhagsstaða fjárfesta er mismunandi. Bent skal á að árangur í fortíð er ekki trygging um árangur í framtíð.
Skýrslur og aðrar upplýsingar sem berast frá Íslandsbanka eru einungis ætlaðar til einkanota. Hvorki má afrita efnið, vitna í það né dreifa því, í heild eða að hluta, án skriflegs leyfis frá Íslandsbanka.
Skýrsla þessi er stutt samantekt og ber ekki að líta svo á að í henni sé að finna allar tiltækar upplýsingar um þau viðfangsefni sem hún fjallar um.
Eftirlitsaðili: Fjármálaeftirlitið (www.fme.is).
BANDARÍKIN
Skýrslu þessari eða afritum hennar má ekki dreifa í Bandaríkjunum eða til viðtakenda sem eru bandarískir ríkisborgarar í andstöðu við takmarkanir sem kveðið er á um í bandarískum lögum. Dreifing skýrslunnar í Bandaríkjunum kynni að teljast brot á þeim lögum.
KANADA
Upplýsingarnar í skýrslu þessari eru ekki ætlaðar til dreifingar eða útbreiðslu með neinum hætti í Kanada og því ber ekki að líta á þær sem fjármálaráðgjöf eða ráðleggingu um fjárfestingar í skilningi kanadískra verðbréfalaga.
ÖNNUR LÖND
Lög og reglugerðir í öðrum löndum kunna einnig að takmarka dreifingu skýrslu þessarar.


