Vegna slæms veðurs og tilmæla frá Almannavörnum um að fólk haldi sig heima voru útibú Íslandsbanka og Ergo á höfuðborgarsvæðinu lokuð fram yfir hádegi í dag, 26. mars. Eftir klukkan 13.00 verður opnunartími útibúa Íslandsbanka og Ergo höfuðborgasvæðinu hefðbundinn.
Ráðgjafaver bankans er einnig opið í síma 440-4000 frá klukkan 9 og netspjall á islandsbanki.is sömuleiðis. Við bendum á app og netbanka Íslandsbanka þar sem hægt er að sinna öllum helstu aðgerðum.
Fréttin var uppfærð eftir klukkan 13 þegar appelsínugul viðvörun á höfuðborgarsvæðinu féll úr gildi.
