Svartsýni heimila ekki meiri í 16 ár 

Væntingar heimila til efnahagslífsins dala verulega í nóvember og hafa ekki verið lakari frá árinu 2010. Svartsýnin nær til allra undirvísitalnanna, ekki síst þeirrar sem mælir atvinnuástand. Sterk fjárhagsstaða heimila styður þó við einkaneyslu og við gerum ráð fyrir hóflegum vexti hennar á næstu misserum.


Væntingavísitala Gallup (VVG) lækkaði um 17 stig á milli mánaða og mældist 43 stig í nóvember. Vísitalan hefur ekki mælst lægri síðan í október 2010 og er nú lægri en þegar faraldurinn stóð sem hæst. Til samanburðar mældist hún 70 stig í nóvember í fyrra og hefur því lækkað um 38% á einu ári. 

Vísitalan hefur nú verið undir 100 stiga jafnvægisgildinu í 17 mánuði samfleytt, eða frá því í júlí í fyrra. Þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri svartsýnir en bjartsýnir á stöðu og horfur í efnahagsmálum. 

Áhyggjur af atvinnuástandi aukast 

Allar undirvísitölur VVG lækka á milli mánaða. Mest lækkar mat á atvinnuástandi, sem fer úr 63 stigum í 42 stig og hefur sú undirvísitala ekki mælst lægri síðan í október 2010. Það rímar ágætlega við þróunina á vinnumarkaði, sem hefur kólnað talsvert. Atvinnuleysi hefur aukist og fyrirtæki eru almennt varkárari í ráðningum en áður.  

Mat á núverandi ástandi mælist 32 stig og hefur ekki verið lægra síðan í janúar 2021. Væntingar til næstu sex mánaða lækka einnig talsvert, úr 72 stigum í 51 stig. Undirvísitalan sem mælir mat á efnahagslífinu lækkar úr 38 stigum og mælist einnig 32 stig en er þó ekki eins lág og í mars og apríl síðastliðnum. 

Rétt er að fara varlega í að draga víðtækar ályktanir af einni mælingu. Vísitalan hefur sveiflast mikið síðustu mánuði. Hún tók stökk upp í 76 stig í ágúst en lækkaði aftur í 52 stig í september og mældist 60 stig í október. Undirliggjandi þróun er þó skýr, enda hafa væntingar heimila farið lækkandi frá því um mitt síðasta ár. 

Hvað segir þetta um einkaneysluna?

Lágar væntingar benda jafnan til þess að heimilin haldi að sér höndum og það má þegar sjá í tölunum. Einkaneysla jókst um 3,6% í fyrra en aðeins um 1,3% á fyrri helmingi þessa árs samkvæmt Hagstofunni. Þá hefur kortavelta heimila innanlands dregist saman að raunvirði á árinu. 

Að okkar mati endurspegla væntingarnar þó fremur mat heimila á efnahagslífinu í heild en á eigin fjárhagsstöðu. Þrálát verðbólga, háir vextir og kólnun á vinnumarkaði lita líklega viðhorf margra. Fjárhagsstaða heimilanna er hins vegar enn sterk. Innlán heimila námu 2.010 ma.kr. í lok september, að séreignarsparnaði meðtöldum, og höfðu aukist um 11,7% á milli ára. Skuldsetning er jafnframt hófleg og vanskil lítil í sögulegu samhengi.  

Þá vekur athygli að sambandið milli þróunar VVG annars vegar, og einkaneyslu og efnahagsástandsins hins vegar, virðist með öðrum hætti nú en var í fyrri dýfum. Bæði í kjölfar hrunsins og á fyrstu fjórðungum faraldursins voru efnahagsaðstæður mun tvísýnni og staðan á vinnumarkaði mun alvarlegri en nú er raunin. Af hverju þessi munur stafar skal ósagt látið.

Hægur vöxtur einkaneyslu framundan

Taktur hagkerfisins hefur breyst talsvert undanfarið ár. Slaki hefur myndast í efnahagslífinu og háir vextir hafa haldið aftur af umsvifum. Þetta endurspeglast glöggt hjá heimilunum, sem eru farin að halda meira að sér höndum og eru svartsýnni á stöðu og horfur í efnahagsmálum en þau hafa verið um langt skeið. Þrátt fyrir það teljum við að einkaneyslan haldi áfram að vaxa, en þó mun hægar en áður. 

Ein helsta ástæða þess að við gerum ekki ráð fyrir samdrætti í einkaneyslu er traust staða heimilanna. Sparnaður er talsverður og skuldsetning hófleg. Kaupmáttur launa hefur einnig haldið velli undanfarin ár þrátt fyrir mikla verðbólgu en kaupmátturinn er þó aðeins að gefa eftir samkvæmt nýjustu tölum. Þá hefur dregið verulega úr fólksfjölgun sem hefur eðli máls samkvæmt áhrif á heildartöluna.

Vöxtur einkaneyslu verður því lítill fyrst um sinn. Í þjóðhagsspá okkar frá september gerum við ráð fyrir því að einkaneysla aukist um 1,1% í ár og 2,1% á næsta ári en að vöxturinn verði kominn í 3,0% árið 2028, þegar umsvif í hagkerfinu aukast á ný. Seðlabankinn er svartsýnni og spáir 0,4% vexti einkaneyslu í ár í nýjustu Peningamálum.

Þegar verðbólga hjaðnar og vextir taka að lækka gæti hluti sparnaðarins leitað í neyslu og væntingar heimila tekið við sér á ný. Verðbólga hjaðnaði lítillega í nóvember og við gerum ráð fyrir að hún hjaðni nokkuð hratt eftir áramót. Spáin er þó bundin óvissu. Ef kólnunin í hagkerfinu dregst á langinn gæti svartsýni heimila einnig reynst þrálátari og einkaneyslan orðið veikari á næstu misserum en við gerum ráð fyrir.

Höfundur


Berg­þóra Bald­urs­dótt­ir

Hagfræðingur í Greiningu


Hafa samband