Stelpur, stálp og tækni

Í tilefni af stelpur, stálp og tækni deginum tókum við hjá Íslandsbanka á móti 60 stelpum og stálpum úr 9. bekk


Háskólinn í Reykjavík hvetur konur til náms í tæknigreinum með verkefninu Stelpur, stálp og tækni. Hluti af því verkefni er að kíkja í heimsókn til tæknifyrirtækja og kynnast þar fjölbreyttum störfum, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn.

Íslandsbanki tók vel á móti stelpunum úr 9. bekk í Álfhólsskóla og Kársnesskóla og kynnti þeim fyrir þeim fjölbreyttu störfum sem bjóðast á upplýsingatæknisviði bankans. Að lokum fengu þær tækifæri til að hakka sig inní gervibanka.

Hópurinn sýndi mikinn áhuga og leysti öll verkefni vel og örugglega.

Verkefnið er haldinn að fyrirmynd Girls in ICT Day sem haldinn er víða um heim af ITU (International Telecommunication Union), samtökum um upplýsinga- og samskiptatækni innan Sameinuðu þjóðanna.