Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Skandinavískir seðlar á útleið

Viðskipti með danska, norska og sænska seðla á milli landa hafa sætt takmörkunum og fyrirséð er að þær takmarkanir munu aukast enn frekar.


Á undanförnum árum hafa Norðurlöndin þróast sífellt nær því að vera seðlalaus samfélög og reglur um peningaþvættisvarnir verið hertar. Viðskipti með danska, norska og sænska seðla á milli landa hafa því sætt takmörkunum og fyrirséð er að þær takmarkanir munu aukast enn frekar. Í ljósi þessa hættir Íslandsbanki að selja seðla frá Norðurlöndunum (DKK, NOK og SEK) frá og með 1. september næstkomandi.

Fólki sem á seðla í danskri, norskri eða sænskri mynt gefst engu að síður ráðrúm til ársins 2024 til þess að skipta gjaldmiðlunum í bankanum. Þannig hefur fólk ráðrúm til að leysa fé úr hólfum eða hreinsa upp seðla sem til eru heimavið.

Um leið og brugðist er við þróun á Norðurlöndunum er ákvörðunin umhverfisvænt því í kjölfarið dregur úr seðlaflutningum á milli landa, auk þess sem minni viðskipti með seðla styðja við markmið um varnir gegn peningaþvætti.