Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstöður aðalfundar 2022

Aðalfundur Íslandsbanka var haldinn í dag, fimmtudaginn 17. mars kl 16:00 á Grand hótel Reykjavík. Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Hallgrímur Snorrason, fráfarandi stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir, bankastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu bankans á árinu 2021. Ársreikningur bankans var samþykktur sem og tillaga um greiðslu arðs að upphæð 5,95 krónur á hlut, sem jafngildir um 11,9 milljörðum króna.


Aðalfundur Íslandsbanka hf. var haldinn í dag, fimmtudaginn 17. mars 2022, á Grand hótel Reykjavík. Jafnframt var gefinn kostur á rafrænni þátttöku á fundinum. Hallgrímur Snorrason, fráfarandi stjórnarformaður, flutti skýrslu stjórnar og Birna Einarsdóttir, bankastjóri, fór yfir starfsemi og afkomu bankans á árinu 2021. Ársreikningur bankans var samþykktur sem og tillaga um greiðslu arðs að upphæð 5,95 kr. á hlut, sem jafngildir um 11,9 milljörðum króna Ákvað fundurinn að Ernst & Young gegni áfram hlutverki sínu sem endurskoðandi Íslandsbanka.

Samþykkt var heimild stjórnar til að kaupa fyrir hönd bankans allt að 10% af hlutafé hans. Heimild þessi skal nýtt í þeim tilgangi að setja upp formlega endurkaupaáætlun eða til að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup bankans á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi þar sem jafnræðis hluthafa er gætt við boð um þátttöku eða á annan hátt sem stjórnin telur bankanum og hluthöfum hans hagfellt.

Sjálfkjörið var í stjórn bankans og stöður varamanna án sérstakrar atkvæðagreiðslu. Í stjórn Íslandsbanka sitja því nú eftirfarandi sjö stjórnarmenn:

  • Anna Þórðardóttir
  • Ari Daníelsson
  • Finnur Árnason
  • Frosti Ólafsson
  • Guðrún Þorgeirsdóttir
  • Heiðrún Jónsdóttir
  • Tanya Zharov

Finnur Árnason var kjörinn formaður stjórnar.

Varamenn í stjórn Íslandsbanka eru:

  • Herdís Gunnarsdóttir
  • Páll Grétar Steingrímsson

Samþykkt var tillaga stjórnar um þóknun stjórnarmanna og laun varamanna. Jafnframt voru starfskjarastefna bankans og starfsreglur tilnefningarnefndar samþykktar óbreyttar. 

Í meðfylgjandi skjali greinir nánar frá niðurstöðum fundarins.

Niðurstöður aðalfundar Íslandsbanka (pdf)

Nánari upplýsingar veita


Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir

Fjárfestatengill


Senda tölvupóst
844 4033

Edda Hermannsdóttir

Forstöðumaður


Senda tölvupóst
844 4005