Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.
Heildareftirspurn í útboðinu var 2.560 m.kr.
Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 27 voru samtals 620 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,91%. Heildartilboð voru 2.560 m.kr. á bilinu 2,89% - 3,00%. Seld voru áður útgefin bréf í eigu bankans. Útgefið nafnverð í flokknum er 43.840 m.kr.
Uppgjör viðskipta er þann 29. mars 2021.