Um er að ræða svikatölvupóst í nafni bankans sem biður viðtakanda, öryggisins vegna, um að staðfesta banka- og reikningsupplýsingar til að uppfæra aðgang sinn vegna uppfærslu á netbankanum.
Tilgangur svikanna er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar með því að veiða innskráningu með rafrænum skilríkjum og öryggisnúmer viðtakanda.
Hvað átt þú að gera ef þú lendir í svikum?
Ef þú telur þig hafa lent í svikum og heimilaðir innskráningu með rafrænum skilríkjum, gafst upp öryggisnúmer, þá þarft þú að gera eftirfarandi:
- Frysta öll greiðslukort í appinu, jafnvel þó að þú hafir ekki gefið upp greiðslukortanúmerið.
- Skrá út öll innskráð tæki í appinu. Velja "Meira" niðri í hægra horninu í appinu og ýta þar á tannhjólið. Þar getur þú valið "Skrá út úr öllum tækjum".
- Hringja strax í 440-4000, neyðarþjónustu Íslandsbanka sem er opin allan sólarhringinn fyrir neyðartilfelli.
Að neðan má sjá mynd af sviksamlegum tölvupósti, í nafni Íslandsbanka, sem hefur verið í dreifingu og sviksamlegu vefsíðunni sem hann beinir fólki inn á.

