Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Íslandsbanki lýkur víxlaútboði

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til þriggja og sex mánaða


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á víxlum til þriggja og sex mánaða. Í heild bárust tilboð upp á 4.630 milljónir kr. og var tilboðum tekið fyrir 1.940 milljónir kr.

Seldir voru víxlar til 3 mánaða að nafnverði 1.540 milljónir á 6,40% flötum vöxtum.

Seldir voru víxlar til 6 mánaða að nafnverði 400 milljónir á 6,40% flötum vöxtum.

Stefnt er á að því að víxlarnir verði teknir til viðskipta á Nasdaq Iceland í næstu viku.

Nánari upplýsingar veita:

• Fjárfestatengill - Tinna Molphy, ir@islandsbanki.is og í síma 440 3187.

• Samskiptastjóri - Edda Hermannsdóttir, pr@islandsbanki.is og í síma 440 4005.