Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki gefur út skuldabréf fyrir 500 milljónir evra á 1,75 föstum vöxtum eða 200 punkta álagi yfir millibankavexti

Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra (65 milljarða króna) til fjögurra ára.


Íslandsbanki hefur gefið út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra (65 milljarða króna) til fjögurra ára. Bréfið ber 1,75% fasta vexti, sem jafngildir 200 punkta álagi yfir millibankavexti í evrum.

Rúmlega tvöföld umframeftirspurn var eftir útgáfunni sem var seld til fjölbreytts hóps fjárfesta frá Bretlandi, Norðurlöndunum og meginlandi Evrópu. Stefnt er að skráningu skuldabréfanna í Kauphöllina á Írlandi þann 7. september 2016.

Útgáfan lengir endurgreiðsluferil bankans og lækkar fjármögnunarkostnað. Til stendur að nýta hluta útgáfunnar til að fyrirframgreiða útistandandi skuldir, þar með talið víkjandi skuldabréf að upphæð 138 milljónir evra á gjalddaga 2019. Miðað við fjárhagstölur í lok júní 2016, munu viðskiptin leiða til lækkunar á eiginfjárhlutfalli bankans úr 28.9% í 27.1%, sem er eftir sem áður töluvert yfir kröfum eftirlitsaðila.

Útgáfan verður gefin út undir 1,5 milljarða dollara Global Medium Term Notes (GMTN) útgáfuramma bankans. Grunnlýsingu GMTN rammans ásamt
viðaukum má finna á vefsíðu fjárfestatengsla islandsbanki.is/fjarfestatengsl.

Umsjónaraðilar útboðsins voru Bank of America Merrill Lynch, Citigroup, Deutsche Bank AG, JP Morgan og DNB.

Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka:

'Við höfum náð góðum árangri við að auka breidd í fjármögnun bankans síðustu ár. Þessi útgáfa að upphæð 500 milljónir evra er þriðja skuldabréfaútgáfa Íslandsbanka í evrum og jafnframt þriðja erlenda skuldabréfaútgáfa bankans á árinu 2016.

Hagstæð þróun á vaxtaálagi undanfarnar vikur og umframeftirspurn eftir skuldabréfum bankans er kærkomið merki þess að fjárfestar hafa trú á rekstri Íslandsbanka, hagfelldu efnahagsumhverfi á Íslandi og þeim ábyrgu skrefum sem tekin hafa verið í átt til losunar fjármagnshafta.'

Þessi útgáfa gerir okkur kleift að endurgreiða óhagstæðari fjármögnun, og með því stígur bankinn mikilvægt skref í átt til þess að vera að fullu fjármagnaður á markaði. Bætt aðgengi að erlendum fjármagnsmörkuðum mun einnig nýtast vel þeim viðskiptavinum okkar sem þurfa fjármögnun í erlendri mynt.'