Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 1.740 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 1.740 m.kr.

Óverðtryggði flokkurinn ISLA CB 19 var stækkaður um 500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 5,30%. Heildartilboð voru 520 m.kr. á bilinu 5,29% - 5,32%. Heildarstærð flokksins verður 10.020 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var stækkaður um 60 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,10%. Heildartilboð voru 60 m.kr. á 3,10%. Heildarstærð flokksins verður 8.320 m.kr. eftir útgáfuna.

Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var stækkaður um 1.160 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,05%. Heildartilboð voru 1.160 m.kr. á bilinu 2,99% - 3,05%. Heildarstærð flokksins verður 21.040 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 4. apríl næstkomandi.

Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 69.500 m.kr.