Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf.: Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum. Heildareftirspurn í útboðinu var 2.040 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.040 m.kr.

Heildartilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 24 voru 1.340 m.kr. á bilinu 3,05% - 3,10%. Öll tilboð voru afþökkuð að þessu sinni.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 30 voru samtals 200 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,708%. Heildartilboð voru 700 m.kr. á bilinu 2,708% - 2,760%.

Heildarstærð flokksins verður 9.240 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 25. júlí næstkomandi.

Það sem af er ári 2017 hefur Íslandsbanki gefið út sértryggð skuldabréf fyrir 30.840 m.kr. Heildarfjárhæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka að afloknu útboði verður að nafnverði 95.540 m.kr.