Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki hf. lýkur útboði sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Óverðtryggði flokkurinn, ISLA CB 19, var boðinn út og seldust þar 800 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 6,50%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 22 var einnig boðinn út og seldust þar 540 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,18%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2,9 ma. kr. en 46% tilboða var tekið. Heildarstærð ISLA CB 19 að loknu útboði verður 5,84 ma. kr. og heildarstærð ISLA CBI 22 verður 4,32 ma. kr. Heildarupphæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 52,86 ma. kr. að loknu útboði.

Stefnt er að töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 21. janúar.