Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Herdís Gunnarsdóttir tekur sæti í aðalstjórn Íslandsbanka


Herdís Gunnarsdóttir hefur tekið sæti sem aðalmaður í stjórn Íslandsbanka hf. Hún tekur sæti Flóka Halldórssonar sem sagði sig nýverið úr stjórn bankans, sbr. tilkynning þess efnis þann 4. nóvember sl. (sjá hér). Herdís er framkvæmdastjóri réttindasviðs Tryggingastofnunar og hefur áður starfað, m.a. sem forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurlands. Herdís hefur mikla reynslu af stjórnarstörfum á vett­vangi félagasamtaka, stéttarfélaga, lífeyrissjóða, banka og í Evrópusamstarfi.

 

Herdís hefur verið varamaður í stjórn Íslandbanka frá apríl 2016.