Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Áheit aukast um 24% á milli ára

Þegar rúm vika er í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur þátttakendum nú þegar fjölgað um 2% miðað við sama tíma í fyrra og áheit 24% hærri.


Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður haldið í 36. sinn laugardaginn 24. ágúst nk. Um 9.660 manns hafa skráð sig til þátttöku. Enn sem komið er hefur Íslendingum fjölgað um 14% á milli ára en erlendum þátttakendum fækkað um 20%.  

Þá hefur áheitum á hlaupastyrkur.is fjölgað um 24% frá því á sama tíma í fyrra og um 30% fleiri þátttakendur eru skráðir fyrir góðum málefnum. Góðgerðarfélögum hefur fjölgað um 12% á milli ára.

Hlaupaleið maraþonsins í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hefur verið breytt umtalsvert frá hlaupi síðasta árs í því skyni að skapa bæði þátttakendum og áhorfendum betri aðstöðu og auka stemningu við hlaupið. Hin nýja leið er fjölbreyttari en sú gamla og verður hlaupinn hringur í stað þess að hlauparar fari sömu leiðina tvisvar í sömu átt. Breytingin felur einnig í sér að leiðin liggur nú í meira mæli í gegnum íbúagötur heldur en fyrri ár.

Edda Hermannsdóttir, markaðs- og samskiptastjóri Íslandsbanka:

„Reykjavíkurmaraþonið er hjá mörgum einn stærsti fjölskyldu og hlaupaviðburður ársins og markmið okkar er að allir geti tekið þátt í deginum, stórir sem smáir. Í gegnum tíðina hafa safnast 820 milljónir króna til góðra mála sem hefur skipt sköpum fyrir góðgerðarfélögin enda er þetta stærsta góðgerðarsöfnun landsins. Gott veður í sumar hefur haft jákvæð áhrif á landsmenn þar sem fleiri eru komnir í hlaupaskóna og hafa skráð sig til þátttöku sem er mjög ánægjulegt.“