Viltu vita meira um sjóði? - Akureyri

Hvað þarf ég að hafa í huga þegar ég er að kaupa í sjóði? Á þessum fræðslufundi verður farið yfir helstu atriði um sjóði og hvaða skref þarf að taka til að hægt sé að kaupa í sjóði. Meðal þess sem verður rætt á fundinum:

  • Yfirferð yfir sjóðaúrval Íslandssjóða, dótturfélag Íslandsbanka
  • Farið vel yfir lausafjársjóði og blandaða sjóði
  • Hvernig sjóðir virka
  • Upplýsingablöð sjóða og hvernig á að lesa úr þeim
  • Hvernig og hvar er hægt að kaupa í sjóði
  • Hvert er hægt að leita til að fá upplýsingar og ráðgjöf

Erindi flytja Linda Arnardóttir, verðbréfaráðgjafi í Verðbréfaráðgjöf Íslandsbanka og Katrín Kristinsdóttir, sérfræðingur í sjóðastýringu hjá Íslandssjóðum

Fundurinn fer fram í útibúi Íslandsbanka á Akureyri. Boðið verður upp á léttar veitingar á meðan fundinum stendur.

Viðburður

17:00 - 18:00

Útibú Íslandsbanka á Akureyri