Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.360 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,62%. Heildartilboð voru 500 m.kr. á 2,62%. Heildarstærð flokksins verður 23.900 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 27 voru samtals 1.780 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,16%. Heildartilboð voru 1.780 m.kr. á bilinu 3,00% - 3,16%. Til viðbótar verður flokkurinn stækkaður um 960 milljónir vegna verðbréfalán til viðskiptavaka. Heildarstærð flokksins verður 4.500 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 1.460 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 0,60%. Heildartilboð voru 2.080 m.kr. á bilinu 0,56% - 0,65%. Heildarstærð flokksins verður 26.240 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 10. nóvember 2020.

Nánari upplýsingar veita:


Profile card

Fjárfestatengsl


Senda póst