Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.100 m.kr.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 4.100 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 27 voru samtals 4.100 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,94%. Heildartilboð voru 4.100 m.kr. á bilinu 2,92% - 2,94%. Seld voru áður útgefin bréf í eigu bankans. Útgefið nafnverð í flokknum er 43.840 m.kr.

Einnig gefur bankinn út 10.000 m.kr. í flokki ISLA CB 23 til eigin nota. Heildarstærð flokksins verður 39.940 m.kr. eftir útgáfuna.

Uppgjör viðskipta er þann 27. apríl 2021.

Nánari upplýsingar:


Profile card

Fjárfestatengsl


Fjárfestatengsl