Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf.: Útboð á sértryggðum skuldabréfum 26. apríl

Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30.


Íslandsbanki hf. verður með útboð á sértryggðum skuldabréfum fimmtudaginn 26. apríl 2018.

Boðnir verða út verðtryggðu flokkarnir ISLA CBI 24 og ISLA CBI 30. Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta á Nasdaq Iceland þann 3. maí 2018.

Verðbréfamiðlun Íslandsbanka hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum skal skilað á tölvupóstfangið vbm@isb.is fyrir kl. 16:00 þann 26. apríl.

Nánari upplýsingar veita:

Fjárfestatengsl - Gunnar S. Magnússon, ir@islandsbanki.is og í síma 440 4665.