Skráning á biðlista í Tæknikaffi

Viðtökur við Tæknikaffi Íslandsbanka hafa verið góðar og fylltist fljótt í öll sæti þegar opnað var fyrir skráningu. Nú hefur verið settur upp biðlisti sem hægt er að skrá sig á hér að neðan og er unnið að því að bæta við fleiri námskeiðum á næstu vikum til að mæta eftirspurn.

Í Tæknikaffi fá þátttakendur aðstoð við uppsetningu og innskráningu í appið og netbankann. Einnig er farið yfir hvernig nýta má tæki og stafrænar lausnir til að sinna helstu bankaviðskiptum, svo sem millifærslum, greiðslu reikninga og yfirsýn yfir kortaviðskipti.

Viðburður