Debetkort
Sæktu um debetkort hér á vefnum á einfaldan og öruggan hátt.
Ef þú hefur týnt kortinu þínu getur þú fryst kortið í appinu og haft samband við okkur á netspjallinu til að panta nýtt kort.
Sæktu um debetkort hér á vefnum á einfaldan og öruggan hátt.
Ef þú hefur týnt kortinu þínu getur þú fryst kortið í appinu og haft samband við okkur á netspjallinu til að panta nýtt kort.
Debetkortin eru í boði fyrir 9 ára og eldri.
Kortin eru öll með snertilausri virkni.
Með debetkorti tengist þú Fríðu, fríðindaklúbbi Íslandsbanka, sem býður þér sérsniðin endurgreiðslutilboð.
Hægt að nota kortin við kaup á vöru og þjónustu á staðnum eða á netinu.
Þú getur sótt um nýtt kort með rafrænum skilríkjum.
Þú virkjar debetkortið í Íslandsbankaappinu, þar ert þú með öll þín kort og kortaaðgerðir á einum stað.
Þegar þú færð nýja kortið þitt í hendurnar virkjar þú það í gegnum appið. Með fyrstu notkun örgjörva og PIN númers samþykkir þú skilmála kortsins.
Frá 9 ára aldri geta foreldrar og forráðamenn sótt um kort fyrir börnin sín og fylgst með og stýrt notkun í appinu. Á örfáum mínútum er að hægt að stofna reikning og sækja um debetkort en þá þarf barnið að vera með rafræn skilríki
Fríða er fríðindakerfi Íslandsbanka, sem gengur út á sérsniðin endurgreiðslutilboð.
Tilboðin felast í endurgreiðslu til viðskiptavina. Þú notar appið til að skoða og virkja tilboð frá Fríðu og borgar svo með kortinu þínu frá Íslandsbanka.
Afsláttinn færð þú svo endurgreiddan 18. hvers mánaðar.
18 ára og yngri | 18 ára og eldri* |
Innlend hraðbankaheimild: 50.000 á sólarhring | Innlend hraðbankaheimild: 100.000 kr á sólarhring |
Erlend hraðbankaheimild: 50.000 á sólarhring | Erlend hraðbankaheimild: 80.000 kr á sólarhring |
*Öll stúdentakort eru með 50.000 kr úttektarheimild.
Hér eru nokkur atriði sem gætu svarað þínum spurningum. Þú getur líka rætt við ráðgjafa á netspjallinu eða hringt í ráðgjafaver. Við svörum um hæl.
Almennir skilmálar debetkorta