Umboðsmaður viðskiptavina
Telji viðskiptavinur sig ekki hafa fengið efnislega umfjöllun eða úrlausnir í samræmi við gildandi lög eða reglur bankans, getur hann leitað til Umboðsmanns viðskiptavina.
- Þegar aðkomu Umboðsmanns er óskað skal liggja fyrir niðurstaða frá útibúi, eða þeirri viðskiptaeiningu sem fer með málefni viðskiptavinar.
- Hlutverk umboðsmanns er að skoða málin hlutlaust og vinna að úrlausn mála eftir þeim leiðum sem í boði eru hverju sinni innan bankans og sanngjarnar geta talist miðað við aðstæður.
Hægt er að koma málum á framfæri við umboðsmann á eftirfarandi hátt:
- Senda bréf til umboðsmanns þar sem gerð er grein fyrir viðkomandi máli. Utanáskrift er:
Umboðsmaður viðskiptavina Íslandsbanka, Hagasmára 3, 201 Kópavogur - Senda tölvupóst á umbodsmadur@islandsbanki.is
- Óska eftir fundi með umboðsmanni í gegnum síma 440 4000
Umboðsmaður viðskiptavina er Kolbrún Jónsdóttir.