Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Niðurstaða útboðs sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.


Íslandsbanki hf. lauk í dag útboði á sértryggðum skuldabréfum.

Heildareftirspurn í útboðinu var 2.900 m.kr.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 21 voru samtals 500 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 2,94%. Heildartilboð voru 500 m.kr. á bilinu 2,92% -2,94%. Heildarstærð flokksins verður 5.680 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í óverðtryggða flokkinn ISLA CB 23 voru samtals 1.400 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 3,54%. Heildartilboð voru 1.640 m.kr. á bilinu 3,50% - 3,56%. Heildarstærð flokksins verður 23.080 m.kr. eftir útgáfuna.

Samþykkt tilboð í verðtryggða flokkinn ISLA CBI 28 voru samtals 480 m.kr. á ávöxtunarkröfunni 1,06%. Heildartilboð voru 760 m.kr. á bilinu 1,00% - 1,08%. Heildarstærð flokksins verður 18.300 m.kr. eftir útgáfuna.

Stefnt er að töku skuldabréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 23. mars 2020.