Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Islandsbanki hf. : Lýkur útboði sértryggðra skuldabréfa

Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa.


Íslandsbanki hf. hefur í dag lokið útboði á tveimur flokkum sértryggðra skuldabréfa. Óverðtryggði flokkurinn, ISLA CB 19, var boðinn út og seldust þar 1,0 ma. kr. á ávöxtunarkröfunni 6,59%. Verðtryggði flokkurinn ISLA CBI 26 var einnig boðinn út og seldust þar 1,38 ma. kr. á ávöxtunarkröfunni 3,21%.

Heildareftirspurn í útboðinu var 3,54 ma. kr. en 67% tilboða var tekið. Heildarstærð ISLA CB 19 að loknu útboði verður 6,84 ma. kr. og heildarstærð ISLA CBI 26 verður 11,9 ma. kr. Heildarupphæð útistandandi sértryggðra skuldabréfa Íslandsbanka verður að nafnverði 64,23 ma. kr. að loknu útboði.

Stefnt er að töku bréfanna til viðskipta í Nasdaq Iceland þann 26. maí.