Athugið

Þessi frétt er meira en sex mánaða gömul og tölfræði gæti hafa breyst

Íslandsbanki lækkar vexti

Vaxtakjör Íslandsbanka munu taka breytingum í dag 11.september í kjölfar af stýrivaxtaákvörðun Seðlabanka Íslands.


Fastir vextir óverðtryggðra húsnæðislána til 36 og 60 mánaða verða lækkaðir um 0,25 prósentustig

 Breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,10 prósentustig

 Breytilegir innlánsvextir lækka í flestum tilvikum um 0,15 prósentustig

 Ergo bílalán og bílasamningar lækka um 0,10 prósentustig

 Yfirdráttarvextir lækka um 0,10 - 0,25 prósentustig