Störf í boði
Umsóknir um auglýst störf og almennar starfsumsóknir
Vinsamlega fyllið út upplýsingar á því umsóknarformi sem hér birtist. Það er yfirleitt beðið um að a.m.k. starfsferilskrá fylgi útfylltri umsókn. Kerfið tekur við skjölum á .doc og .pdf formi, mest 4 viðhengjum samtals.
Auglýst störf í boði
Forritarar í Hugbúnaðardeild Íslandsbanka
Íslandsbanki hefur skýra framtíðarsýn og hefur samþykkt 5 ára stefnu í upplýsingatækni.
Hugbúnaðardeild Íslandsbanka er skipuð metnaðarfullu og lausnamiðuðu starfsfólki sem leitast ávallt við að vera í fararbroddi með lausnir á sviði upplýsingatækni. Liðsheild sem er sterk og tekst á við nýjar áskoranir sameiginlega til að skila bestu lausninni hverju sinni. Vegna fjölda verkefna óskum við eftir að ráða forritara í krefjandi og skemmtileg verkefni í netbanka, framendakerfi og lánaverkefni.
Helstu verkefni:
- Viðmótsforritun
- Greining, hönnun og þróun
- Viðhald og innleiðing
- Önnur verkefni eftir nánara samkomulagi
Hæfniskröfur:
- Háskólapróf sem nýtist í starfi
- Þekking og reynsla af notkun einhverra eftirtaldra forrita er kostur
- .NET, C#, MVC, WCF, SQL, PL/SQL, Ajax, CSS, Javascript/jQuery, X/HTML/5
- Faglegur metnaður og öguð vinnubrögð
- Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu
- Frumkvæði og kraftur
Nánari upplýsingar veitir Kjartan Hrafn Kjartansson, deildarstjóri sími 440 4379 kjartan.kjartansson@islandsbanki.is Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar ásamt ítarlegri ferilskrá fyrir 21. maí nk. Tengiliður á mannauðssviði er Sigrún Ólafsdóttir, sími 440 4172, sigrun.olafs@islandsbanki.is
Ráðgjafi einstaklinga í útibú Íslandsbanka á Reyðarfirði
Reyðarfjörður er einn af þéttbýliskjörnunum í Fjarðabyggð sem hafa eflst mikið með tilkomu álvers í firðinum. Gríðarleg uppbygging hefur orðið í skóla og íþróttamálum á svæðinu og er umhverfið mjög fjölskylduvænt. Þá eru hér gönguslóðir og nálægð við miklar útivistargersemar. Nálægð við Egilsstaði þar sem mikil uppbygging hefur verið í þjónustu og verslun ásamt alþjóðaflugvelli er mikill kostur.
Leitað er að kraftmiklum starfsmanni í lið
ráðgjafa útibúsins. Við leitum að
áhugasömum einstaklingi, sem hefur frumkvæði,
metnað og vilja til að veita viðskiptavinum
úrvalsþjónustu. Við bjóðum upp á
góðan, jákvæðan vinnustað sem er og
verður reyklaus.
Helstu verkefni:
- Fjármálaráðgjöf til einstaklinga
- Veita framúrskarandi þjónustu
- Önnur verkefni eftir nánara samkomulagi
Hæfniskröfur: - Háskólamenntun æskileg
- Reynsla af starfi hjá fjármálafyrirtæki kostur
- Frumkvæði og geta til að vinna undir álagi
- Nákvæmni og talnaskilningur
- Sjálfstæð vinnubrögð og samstarfshæfni
Umsóknir óskast fylltar út á www.islandsbanki.is og sendar ásamt ítarlegri ferilskrá. Nánari upplýsingar veitir Ormarr Örlygsson, útibússtjóri s. 440 3661 ormarr.orlygsson@islandsbanki.is Tengiliður á mannauðssviði er Sigrún Ólafsdóttir, sigrun.olafs@islandsbanki.is sími 440 4172. Umsóknarfrestur er til og með 20 maí nk.
Almenn starfsumsókn
Ef ekkert starf er auglýst getur þú sent inn almenna starfsumsókn.
Umsókn um sumarstarf 2012
Það er búið að ráða í sumarstörf 2012 og hætt að taka við umsóknum.
Áttu inni umsókn og vilt uppfæra efni?
Þeir sem hafa sótt um og búið til notendanafn og lykilorð geta breytt og bætt við upplýsingum um sig, reynslu og menntun. Þegar ný gögn eru sett inn er mikilvægt að eyða úreltum fylgiskjölum.
Starfsfólk Íslandsbanka
Það er viðhorf stjórnenda Íslandsbanka að fjárfesting í starfsfólki sé lykillinn að velgengni bankans og mikilvægt sé að byggja upp fjölbreyttan hóp starfsmanna sem býr yfir ólíkri reynslu, þekkingu og hæfileikum.
Íslandsbanki er krefjandi vinnustaður þar sem samvinna er lykillinn að árangri. Starfsfólk Íslandsbanka er hvatt til að sýna frumkvæði, axla ábyrgð, læra nýja hluti, koma með hugmyndir og sýna það besta sem í því býr. Fjárhagslegur styrkur bankans, ásamt þekkingu og hæfileikum starfsfólksins eru undirstaða fyrirtækisins og grunnurinn að framtíðaruppbyggingu þess.
