Útibú og þjónusta

Þjónustusími - 515 4444

Þjónustusíminn, 515 4444, er tölvuvæddur símsvari í Reiknistofu bankanna sem veitir upplýsingar um stöðu og hreyfingar á reikningum allan sólarhringinn.

  • Gefur upplýsingar um stöðu á tékka- og sparireikningum og tuttugu síðustu færslur
  • Hægt að millifæra milli eigin reikninga
  • Hægt að greiða reikninga og skuldabréf
  • Gefur upplýsingar um stöðu á kreditkortum
  • Er opinn allan sólarhringinn
  • Er ókeypis - þú borgar bara fyrir símtalið

Aðgangur að Þjónustusímanum

Til þess að fá aðgang að Þjónustusímanum þarftu að velja þér 4 stafa leyninúmer. Fyrsta leyninúmerið sem þú velur þarf að skrá hjá þjónustufulltrúum í útibúum bankans en því er síðan hægt að breyta hvenær sem er í gegnum Þjónustusímann.

Athugið að samanlagðar skuldfærslur af reikningi geta hæst verið 250.000 kr. á sólarhring.

Notkun Þjónustusímans

  • Hringdu í síma 515 4444 og bíddu eftir sambandi
  • Veldu fjögurra stafa bankanúmer og sex stafa reikningsnúmer (alls 10 stafir) og ýttu síðan á [#]

Nánari upplýsingar

  • Ef þú ert t.d. með tékkareikning númer 123 í útibúi 515, slærðu inn 10 stafa töluna: "0515-000123"
  • Mundu eftir að bæta núllum fyrir framan banka- og reikningsnúmerið ef það nær ekki tilskildum stafafjölda
  • Sláðu síðan inn fjögurra stafa leyninúmer og ýttu aftur á [#]
  • Hægt er að flýta lestri færslna með því að ýta á [*]

Millifærslur í Þjónustusímanum

  • Aðeins er hægt að millifæra á milli reikninga með sömu kennitölu
  • Sláðu fyrst inn bankanúmer og reikningsnúmer úttektarreiknings (alls 10 stafir) og ýttu á [#]
  • Sláðu síðan inn fjögurra stafa leyninúmer og ýttu aftur á [#]
  • Veldu 4 og [#] fyrir millifærslur
  • Sláðu því næst inn fjögurra stafa bankanúmer, tveggja stafa númer höfuðbókar, sex stafa númer reiknings sem leggja skal inn á (alls 12 stafir) og ýttu svo á [#]
  • Sláðu inn upphæðina í krónum sem þú ætlar að millifæra og ýttu síðan á [#]
  • Ýttu á 1 og [#] til að staðfesta færsluna eða á 0 og [#] til að hætta við

Greiðsla reikninga og skuldabréfa í Þjónustusímanum

  • Sláðu fyrst inn bankanúmer og reikningsnúmer úttektarreiknings (alls 10 stafir) og ýttu á [#]
  • Sláðu síðan inn fjögurra stafa leyninúmer og ýttu aftur á [#]
  • Veldu 5 og [#] fyrir greiðslu reikninga og skuldabréfa
  • Sláðu inn fjögurra stafa númer banka, tveggja stafa númer höfuðbókar, sex stafi fyrir reiknings- eða skuldabréfanúmer sem greiða á (alls 12 stafir) og ýttu svo á [#]
  • Þessar upplýsingar koma fram á tölvurönd seðilsins
  • Upphæðin sem verður skuldfærð er nú lesin
  • Ýttu á 1 og [#] til þess að staðfesta greiðsluna eða 0 og [#] til þess að hætta við

Upplýsingar um kreditkortareikninga

  • Sláðu inn 16 stafa kortanúmer og ýttu á [#]
  • Sláðu síðan inn fjögurra stafa leyninúmer og ýttu síðan aftur á [#]

Aðgerðanúmer í Þjónustusímanum

  • 1[#] Staða reiknings og færslur endurteknar
  • 2[#] Leyninúmeri breytt - ýttu á [#] til að staðfesta
  • 3[#] Fyrirspurn um annan reikning
  • 4[#] Millifærsla milli eigin reikninga
  • 5[#] Greiðsla reikninga og skuldabréfa
  • 0[#] Hætta við

Athugaðu að þú getur flýtt fyrir með því að slá strax inn t.d. 4 og [#] áður en upplestur á texta hefst eða meðan verið er að lesa upp textann.