Beint á efnisyfirlit síðunnar
Útibú og þjónusta

S24 sameinast Íslandsbanka

Nú hefur S24 sameinast útibúi Íslandsbanka að Digranesvegi 1 í Kópavogi undir merkjum Íslandsbanka.

Ytri vefur Íslandsbanka tekur við af ytri vef S24
Vegna sameiningarinnar mun ytri vefur Íslandsbanka taka við af ytri vef S24, www.s24.is. Hér að neðan átt að geta fundið allar þær upplýsingar sem þú þarfnast vegna sameiningarinnar. Jafnframt höfum við sent þér bréf heim til þín og einnig í Netbanka S24 um sameininguna.

Netbanki S24 áfram aðgengilegur
Netbanki S24 verður áfram virkur en mun sameinast Netbanka Íslandsbanka á næstu mánuðum. Þangað tilgetur þú einungis unnið með reikninga og aðra bankaþjónustu S24 í Netbanka S24 en ekki nýja þjónustu hjá Íslandsbanka.

Opna Netbanka S24

 

Aðgangur að Netbanka Íslandsbanka
Við höfum nú þegar sent þér notandanafn og lykilorð í Netbankann þinn hjá S24 sem veitir þér aðgang að Netbanka Íslandsbanka. Þar getur þú meðal annars séð öll viðskiptakjör þín.

Vaxtakjör
Þú getur kynnt þér þau kjör sem þú ert með í Netbanka Íslandsbanka

Aðgengi að 21 útibúi Íslandsbanka um land allt – þitt er valið
Sameining S24 og Íslandsbanka veitir þér aðgang að 21 útibúi Íslandsbanka um land allt. Enda þótt þjónusta S24 flytji á Digranesveginn getur þú valið það útibú sem hentar þér best. Þú þarft ekki að ganga frá formlegum viðskiptaflutningi heldur færðu sömu þjónustuna alls staðar.

Óbreytt reikningsnúmer en bankanúmer breytist
Innlánsreikningar munu sameinast sambærilegum reikningum hjá Íslandsbanka en reikningsnúmerin haldast óbreytt. Við flutninginn breytist bankanúmerið úr 1113 í 521. Þá munu númer höfuðbóka á sparireikningum breytast í nokkrum tilvikum.

Greiðslukort S24 verða áfram virk
Greiðslukort merkt S24 verða áfram virk en við næstu endurnýjun breytist kortið í greiðslukort Íslandsbanka. Þér er þó velkomið að flýta endurnýjun og fá Íslandsbankakort.

Nýtt símanúmer – 440 4000
Þjónustuver Íslandsbanka er opið alla virka daga frá kl. 9-18 en þar er hægt að sinna öllum helstu bankaviðskiptum.

Hafðu samband
Við hvetjum þig til að heimsækja okkur í það útibú sem hentar þér best. Við erum ávallt reiðubúin að veita þér góða og persónulega þjónustu.

Við bendum þér á þjónustunúmer Íslandsbanka, 440 4000, sem er opið alla virka daga frá 9-18 eða sent okkur tölvupóst á netfangið islandsbanki@islandsbanki.is.