Úrskurðar- og réttarúrræði
Kvörtun
Komi upp ágreiningur milli viðskiptavinar og bankans getur viðskiptavinur sent bankanum kvörtun. Með kvartanir er farið samkvæmt verklagsreglum bankans um meðferð kvartana. Kvörtun er hægt að bera fram með ýmsum hætti, s.s. með tölvupósti, bréfleiðis, með símtali eða á fundi. Jafnframt er hægt að senda kvörtun með rafrænum hætti í gegnum vef bankans.
Umboðsmaður viðskiptavina
Viðskiptavinir geta leitað til umboðsmanns viðskiptavina telji þeir á sig hallað í viðskiptum við bankann og telja sig ekki hafa fengið sanngjarna úrlausn sinna mála. Hlutverk umboðsmanns er að skoða málin hlutlaust og vinna að sanngjarnri úrlausn.
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Viðskiptavinur getur skotið ágreiningi til Úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki:
Úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki
Suðurlandsbraut 32
108 Reykjavík
Sími: 525 2700
Fax: 525 2727
Tölvupóstur: urskfjarm@fme.is
Fylla þarf út sérstakt málskotseyðublað og skila eða senda í pósti til skrifstofu Fjármálaeftirlitins til að óska eftir úrskurði nefndarinnar. Jafnframt má nálgast málsskotseyðublað á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins eða á skrifstofu þess. Nánari upplýsingar um nefndina, málskotsgjald, hverjir geta leitað til nefndarinnar o.fl. er að finna á vef Fjármálaeftirlitsins, fme.is.
Upplýsinga- og leiðbeiningaþjónusta Fjármálaeftirlitsins
Fjármálaeftirlitið starfrækir upplýsinga- og leiðbeiningaþjónustu fyrir viðskiptavini eftirlitsskyldra aðila. Sjá nánari upplýsingar um neytendaþjónustu Fjármálaeftirlitsins á fme.is.
Neytendastofa
Neytendastofa er stjórnvald á sviði neytendamála sem annast framkvæmd á ýmsum lögum á sviði neytendaverndar. Á heimasíðu Neytendastofu er m.a. unnt að nálgast upplýsingar um það í hvaða tilvikum og með hvaða hætti neytendur geta leitað til stofnunarinnar, telji þeir að réttur sé á þeim brotinn. Sjá nánar á neytendastofa.is.
Dómstólar
Aðilar geta leitað réttar síns fyrir almennum dómstólum hafi ágreiningsefnið ekki verið undanþegið lögsögu þeirra með lögum eða samningi.
Tryggingasjóður innstæðueigenda og fjárfesta
Vakin er athygli á Tryggingarsjóði innstæðueigenda og fjárfesta sem starfar skv. lögum nr. 98/1999 um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta. Markmið laganna er að veita innstæðueigendum í viðskiptabönkum og sparisjóðum og viðskiptavinum fyrirtækja sem nýta sér heimildir laga til að stunda viðskipti með verðbréf lágmarksvernd gegn greiðsluerfiðleikum viðkomandi fyrirtækis í samræmi við ákvæði laganna. Sjá nánar viðeigandi lög/reglur og frekari upplýsingar um sjóðinn, útgreiðslur o.fl. á tryggingarsjodur.is.
