Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Skipulag

Sáttir

Vegna þeirra erfiðu efnahagsaðstæðna sem ríkt hafa í íslensku efnahagslífi hefur Íslandsbanki neyðst til að taka yfir nokkur fyrirtæki í ýmissi starfsemi og er bankinn því orðinn óbeinn þátttakandi á mörkuðum utan fjármálastarfsemi. Við slíka yfirtöku starfar bankinn eftir skýrum verklagsreglum sem ætlað er að stuðla að traustum rekstri fyrirtækja en um leið að tryggja jafnræði milli hins yfirtekna fyrirtækis og samkeppnisaðila. Bankinn hefur haft sjónarmið samkeppnisréttar að leiðarljósi og unnið náið með Samkeppniseftirlitinu til þess að tryggja að samkeppnishindrandi aðstæður leiða ekki af yfirtökunni.

Íslandsbanki og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sáttir í samræmi við 17. gr. f. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 22. gr. reglna nr. 880/2005 um málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins vegna yfirtöku bankans á eftirfarandi fyrirtækjum:

Sátt vegna yfirtöku Íslandsbanka hf. á Höfðatorgi ehf.

17.10.2012
Íslandsbanki hf. og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sátt, í samræmi við 17. gr. f. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 22. gr. reglna nr. 880/2005 um málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins, vegna yfirtöku Íslandsbanka á Höfðatorgi ehf. 
Nánar

Sátt vegna yfirráða Íslandsbanka hf. og Glitnis banka hf. yfir Bláfugli ehf.

28.02.2011

Íslandsbanki hf., Glitnir banki hf. og Samkeppniseftirlitið hafa gert með sér sátt í samræmi við 17. gr. f. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 22. gr. reglna nr. 880/2005 um málsmeðferð Samkeppniseftirlitsins vegna yfirráða Íslandsbanka og Glitnis yfir Bláfugli.

Nánar
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?
Nei

Takk fyrir!

Ábending þín er móttekin