Beint á efnisyfirlit síðunnar
Skipulag

Stjórn bankans

Friðrik Sophusson

Formaður stjórnar

Friðrik Sophusson hefur víðtæka reynslu og þekkingu á sviði efnahagsmála og stjórnunar fyrirtækja og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök.

Friðrik var framkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands frá árinu 1972 til 1978 þegar hann tók sæti á Alþingi. Hann gegndi þingmennsku um tuttugu ára skeið eða allt til ársins 1998. Friðrik átti sæti í ríkisstjórn árin 1987-1988, þá sem iðnaðar og orkumálaráðherra og síðar sem fjármálaráðherra 1991-1998.

Árið 1999 tók Friðrik við starfi forstjóra Landsvirkjunar sem hann gegndi í tæp 11 ár. Friðrik hefur sinnt fjölda trúnaðarstarfa og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og stofnana. Þeirra á meðal eru seta í bankaráði Landsbankans á árunum 1990-1992, seta í stjórnum Pharmaco, Viðskiptaráðs, Enex, Samorku, Nordel og Eurelectric, samtaka evrópska raforkuiðnaðarins. Friðrik Sophusson var um árabil varaformaður Sjálfstæðisflokksins.

Friðrik er með embættispróf frá lagadeild Háskóla Íslands.

John E. Mack

Varaformaður stjórnar

John E. Mack er Bandaríkjamaður og hefur mikla þekkingu og reynslu á sviði alþjóðlegrar banka- og fjármálaþjónustu sem og á sviði yfirtöku og samruna fyrirtækja. Þá hefur hann nokkra sérþekkingu á sviði innleiðingar góðra stjórnarhátta fyrirtækja (Corporate Governance). John Mack var forstjóri og fjármálastjóri hjá Shinsai Bank í Tokyo frá 2002-2005 en þar leiddi hann m.a. skráningu bankans á hlutabréfamarkað.

John Mack starfaði hjá Bank of America og tengdum félögum á árunum 1978-2001, síðast sem yfirmaður fjármögnunar móðurfélags bankans. Þá var hann einnig forstjóri fyrirtækisins Strategic Solutions, sem er að meirihluta í eigu Bank of America, en það fyrirtæki sérhæfir sig í kaupum og úrvinnslu erfiðra krafna og útlána.

John Mack er með MBA gráðu frá The Virginia Darden School of Business.

Neil Graeme Brown

Neil Graeme Brown er breskur ríkisborgari og hefur yfirgripsmikla reynslu á sviði fjármálastarfsemi og endurskipulagningar alþjóðlegra fyrirtækja.

Neil Brown hefur m.a. starfað sem yfirmaður fjármálaþjónustu Apax Partners. Hann var meðeigandi endurskoðunarskrifstofu Coopers og Lybrand (Nú PwC) í London 1990-1996 og hefur víðtæka þekkingu á sviði yfirtöku og samruna fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu. Brown hefur komið að skráningu fjölda fyrirtækja í Kauphöllina í London sem og á Nasdaq og setið í stjórnum fjölda fyrirtækja á sviði fjárfestinga og fjármála.

Neil Brown hefur MA gráðu frá Emmanuel College Cambridge og er löggiltur endurskoðandi.

Kolbrún Jónsdóttir

Kolbrún er tilnefnd af Bankasýslu ríkisins sem fer með 5% eignarhlut ríkisins í bankanum.

Kolbrún starfaði sem framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Vátryggingafélags Íslands frá 2008-2010. Á árunum 1996-2008 starfaði hún hjá Íslandsbanka, m.a. sem útibústjóri í Garðabæ og í Skútuvogi. Þá var hún einnig forstöðumaður bakvinnslu um skeið. Kolbrún var einnig fjármálastjóri Húsasmiðjunnar frá 1989-1996. Hún hefur kennt sölu- og markaðsmál hjá Endurmenntun Háskóla Íslands og fleiri námskeið.

Kolbrún lauk cand oecon prófi frá Háskóla Íslands árið 1987 auk þess sem hún lauk stjórnendanámi frá Kenan-Flagler Busienss School 1999.

Daniel Levin

Dr. Daniel Levin er bandarískur og svissneskur ríkisborgari með sérþekkingu á stjórnarháttum fyrirtækja. Hann hefur um langt skeið sinnt ráðgjafastörfum fyrir ríkisstjórnir og þróunarstofnanir um þróun fjármagnsmarkaða og fyrir eftirlitsaðila um innleiðingu siðareglna fyrir fjáramálafyrirtæki. Að auki á Dr. Levin sæti í stjórnsýslunefnd Liechtenstein sem vinnur að þekkingarmiðlun milli landa og að eflingu pólitískrar, efnahagslegrar og félagslegrar þróunar. Hann hefur ennfremur tekið virkan þátt í mótun ýmissa laga um fjármálafyrirtæki.

Dr. Levin er með J.D. og Ph.D. gráður í lögum frá the University of Zürich í Sviss sem og LL.M. gráðu í lögum frá Columbia University í New York.

Árni Tómasson

Árni Tómasson hóf störf við endurskoðun árið 1979 og hefur starfað við endurskoðun banka og fjármálafyrirtækja frá árinu 1985. Hann var meðeigandi og síðar stjórnarformaður hjá Deloitte hf. til ársins 2001, var formaður Félags löggiltra endurskoðenda og forseti Norðurlandasambands endurskoðenda. Árni hefur stundað kennslu í meistaranámi við Háskólann í Reykjavík og áður í Háskóla Íslands samtals í yfir 20 ár og hefur gegnt formennsku í prófnefnd endurskoðenda sl. 6 ár. Árni starfaði sem bankastjóri Búnaðarbankans frá 2001-2003, en hefur frá þeim tíma starfað við eigið ráðgjafarfyrirtæki.

Árni var skipaður formaður skilanefndar Glitnis banka hf. í október 2008 og leiddi starfsemi nefndarinnar til október 2011.

Árni Tómasson er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi.

Marianne Økland

Marianne Økland er norskur ríkisborgari og starfar í dag sem framkvæmdastjóri Avista Partners sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviði skuldabréfaútgáfu og fjármögnunar.

Marianne starfaði hjá JP Morgan árunum 1998-2007, m.a. sem sérfræðingur á sviði skuldabréfafjármögnunar fyrirtækja og fjármálastofnana. Á árunum 1994-1998 starfaði hún við skuldabréfafjármögnun hjá Union Bank of Switzerland (UBS). Marianne hefur einnig reynslu á sviði ráðgjafar en hún starfaði sem ráðgjafi hjá ráðgjafafyrirtækinu Marsoft Limited á árunum 1988-1993, en fyrirtækið sérhæfir sig ráðgjöf tengdri fjárfestingum í skipaiðnaði.

Marianne Økland er með M.Sc. gráðu í fjármálum, hagfræði og stærðfræði frá Norwegian School of Economis and Business Administration þar sem hún starfaði við rannsóknir og kennslu um nokkurt skeið.

Varamenn

  • Baldur Pétursson
  • Brynjar Stefánsson
  • Eva Sóley Guðbjörnsdóttir
  • Jón Eiríksson
  • María E Ingvadóttir
  • María Guðrún Sigurðardóttir
  • Sigríður Hallgrímsdóttir