Beint á efnisyfirlit síðunnar
Skipulag

Framkvæmdastjórn

Birna Einarsdóttir

Bankastjóri
Birna Einarsdóttir var skipuð bankastjóri Íslandsbanka í október 2008. Hún var framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs frá 2007 en hafði áður verið framkvæmdastjóriSölu- og markaðsmála frá 2004, útibússtjóri og markaðsstjóri Íslandsbanka. Ennfremur  starfaði Birna á árum áður hjá Iðnaðarbankanum, einum af forverum Íslandsbanka. Á árunum 1998-2004 starfaði Birna sem vörustjóri hjá Royal Bank of Scotland. Birna hefur jafnframt starfað sem markaðsstjóri Íslenska útvarpsfélagsins - Stöðvar 2 og Íslenskrar Getspár. 

Birna er með cand.oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Háskólanum í Edinborg.

Jón Gudni Ómarsson

Framkvæmdastjóri Fjármálasviðs
Jón Guðni Ómarsson var skipaður framkvæmdastjóri fjármálasviðs í október 2011. Hann hefur starfað hjá Íslandsbanka og fyrirrennurum í 10 ár, nú síðast semforstöðumaður fjárstýringar á árunum 2008 til 2011. Áður hafði Jón Guðni meðal  annars starfað innan markaðsviðskipta og á fyrirtækjasviði. Jón Guðni á ennfremur að baki reynslu við ráðgjafastörf við áhættustýringu banka hjá SunGard í Boston. 

Jón Guðni er verkfræðingur að mennt með meistaragráðu í fjármálaverkfræði frá Georgia Institute of Technology í Atlanta í Bandaríkjunum. Þá hefur Jón Guðni lokið námi og unnið sér inn rétt til að bera titilinn Chartered Financial Analyst (CFA) og er löggildur verðbréfamiðlari.

Sigríður Olgeirsdóttir

Framkvæmdastjóri Rekstrar- og upplýsingatæknisviðs
Sigríður Olgeirsdóttir var skipuð framkvæmdastjóri rekstrar- og upplýsingatæknisviðs í september 2010. Hún hefur starfað innan hugbúnaðar- og upplýsingatæknigeiransfrá árinu 1984 og var meðal annars forstöðumaður hugbúnaðarsviðs Tæknivals hf., framkvæmdastjóri Ax Business Intelligence A/S í Danmörku og framkvæmdastjóri Ax hugbúnaðarhúss á Íslandi. 

Sigríður er menntaður kerfisfræðingur frá EDB skolen í Óðinsvéum í Danmörku, rekstrarfræðingur frá Endurmenntun HÍ, og er með MBA gráðu í alþjóðastjórnun frá Háskólanum í Reykjavík.

Stefán Sigurðsson

Framkvæmdastjóri Eignastýringar
Stefán Sigurðsson var skipaður framkvæmdastjóri eignastýringar í október 2008. Hann hefur starfað hjá bankanum frá 2006, fyrst í fyrirtækjaráðgjöf bankans í Kaupmannahöfn og síðar sem framkvæmdarstjóri Viðskiptaþróunar. Stefán hefur starfað á ýmsum sviðum fjármálamarkaða frá árinu 1997, meðal annars sem sérfræðingur á skuldabréfamarkaði, í fjárstýringu, við fyrirtækjaviðskipti og viðskiptaþróun. 

Stefán er með B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.S. gráðu í hagfræði frá Kaupmannahafnarháskóla.

Sverrir Örn Þorvaldsson

Framkvæmdastjóri Áhættustýringar og Lánaeftirlits
Sverrir Örn Þorvaldsson var skipaður framkvæmdastjóri áhættustýringar og lánaeftirlits haustið 2010. Hann hafði áður starfað sem forstöðumaður áhættustýringar frá 2006. Sverrir starfaði áður í 6 ár við rannsóknir, hugbúnaðargerð og gagnaúrvinnslu hjá Íslenskri erfðagreiningu. 

Sverrir er með meistarapróf í fjármálastærðfræði frá Stanford háskóla í Kaliforníu. Hann er með B.S. gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands, og hefur auk þess lokið prófi í verðbréfamiðlun og faggildingu í fjármálalegri áhættustýringu (FRM) á vegum alþjóðasamtaka áhættustýringarsérfræðinga (GARP).

Tryggvi Björn Davíðsson

Framkvæmdastjóri Markaða
Tryggvi Björn Davíðsson var skipaður framkvæmdastjóri markaða í september 2011. Hann hefur víðtæka starfsreynslu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Áður en hann gekk til liðs við Íslandsbanka starfaði hann hjá Barclays Capital í Lundúnum þar sem hann byggði upp og stýrði deild sem annast skuldabréfafjárfestingar í Evrópu. Áður hafði Tryggvi starfað hjá Íslandsbanka-FBA sem greinandi í erlendum skuldabréfafjárfestingum og sambankalánum. Hann var einnig um tíma viðskiptafulltrúi í sendiráði Íslands í París við greiningu á viðskiptatækifærum fyrir íslensk útflutningsfyrirtæki á frönskum markaði. 

Tryggvi er með B.S. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands, MBA gráðu frá INSEAD í Frakklandi og meistaragráðu í fjármálum frá Université Toulouse.

Una Steinsdóttir

Framkvæmdastjóri Viðskiptabankasviðs
Una Steinsdóttir var skipuð framkvæmdastjóri viðskiptabankasviðs í október 2008. Hún hóf störf hjá Íslandsbanka árið 1991, þá sem sérfræðingur í alþjóðadeild, og hefur víðtæka reynslu af áralöngu starfi sínu hjá bankanum, meðal annars við lána- og þjónustustjórnun. 

Una var útibússtjóri bankans í Keflavík frá 1999 – 2007, þegar hún tók við stjórn útibúasviðs bankans. Una er með cand.oecon. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands.

Vilhelm Már Þorsteinsson

Framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs
Vilhelm Már Þorsteinsson var skipaður framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs í október 2008. Hann hóf störf hjá Íslandsbanka árið 1999 og hefur frá þeim tíma starfað að margvíslegum verkefnum innan bankans svo sem í markaðsviðskiptum, skrifstofu forstjóra og á fyrirtækjasviði. Frá árinu 2005 stýrði Vilhelm viðskiptaþróunarteymi bankans sem meðal annars vann að ytri vexti bankans ásamt eignasölu og ýmsum fjármögnunarverkefnum á árinu 2008. 

Vilhelm er með B.S. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík, MBA gráðu frá Pace University í New York og er löggildur verðbréfamiðlari.