Beint á efnisyfirlit síðunnar
Samfélagsleg ábyrgð

Styrkir

Máttarstólpi í samfélaginu

Það er stefna Íslandsbanka að leggja íþrótta- og menningarlífi þjóðarinnar lið.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka – stærsti almenningsviðburðurinn

Íslandsbanki hefur verið stoltur stuðningsaðili Reykjavíkurmaraþons síðan 1997. Hlaupið hefur fest sig í sessi sem fjölskylduviðburður þar sem foreldrarnir hlaupa fyrst í löngu vegalengdunum, fara svo heim og sækja börnin sem taka þátt í Latabæjarhlaupinu.

Hlaupastyrkur.is

Alls tók 12.481 hlaupari í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2011 og flestir söfnuðu áheitum á hlaupastyrkur.is til styrktar góðgerðarfélögum um land allt. Samtals söfnuðust um 43,6 milljónir.

Ólympíufjölskylda ÍSÍ

Íslandsbanki og forverar hans hefur verið einn af fjórum máttarstólpum ÍSÍ með aðild sinni að Ólympíufjölskyldunni. ÍSÍ eru heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar á Íslandi og æðsti aðili frjálsrar íþróttastarfsemi á landinu. Einn af þeim stóru viðburðum sem ÍSÍ stendur fyrir er árlegt hóf þar sem íþróttamenn ársins eru heiðraðir.

Special Olympics

Special Olympics eru alþjóðleg samtök sem hafa það markmið að hvetja fatlaða til dáða á sviði íþrótta. Það er Íslandsbanka mikil ánægja að styrkja starfsemi Special Olympics á Íslandi.

Íslandsbanki hefur styrkir þátttöku Íslands í Special Olympics leikunum. Núna fara Evrópuleikar Special Olympics fram í Varsjá í Póllandi og senda Íslendingar 15 keppendur til að keppa í borðtennis, frjálsum íþróttum, keilu og lyftingum.

Borgarleikhúsið

Íslandsbanki og Borgarleikhúsið hafa frá upphafi bankans átt farsælt og gott samstarf. Íslandsbanki er einn af megin bakhjörlum leikfélagsins og njóta viðskiptavinir Íslandsbanka samstarfsins í formi betri kjara á leiksýningum.

Víkin - Sjóminjasafn Íslands

Frá upphafi Íslandsbyggðar hefur þjóðin byggt afkomu sína á sjávarútvegi. Er mikilvægt að halda vel utan um sögu sjósóknar á þessum tímum framfara og breytinga. Íslandsbanki er einn af þremur máttarstólpum Sjóminjasafnsins Víkurinnar.

Afrekskvennasjóður

Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður að frumkvæði Íslandsbanka í samstarfi við Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands. Tilgangur sjóðsins er að veita framúrskarandi íslenskum íþróttakonum fjárhagslegan stuðning og gera þeim þannig kleift að einbeita sér að íþróttum og ná enn betri árangri á sínu sviði. Í apríl 2010 var fimmta úthlutunin úr sjóðnum og fengu fjórar framúrskarandi íþróttakonur styrk sem gerir þeim kleyft að iðka íþróttir sínar af enn meiri krafti.

Ergo býður umhverfisstyrki

Einstaklingar og fyrirtæki geta sótt um styrkina. Viðskiptaáætlun þarf að fylgja umsókninni ásamt skýringu á því til hvers nýta skal styrkinn. Tímafrestur til að senda inn umsókn er til 11. maí 2012 en styrkjum vegna ársins 2012 verður úthlutað þann 31. maí. Smelltu hér til að lesa meira og sækja um