Beint á efnisyfirlit síðunnar
Samfélagsleg ábyrgð

Kvosin viðskiptasetur

Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Íslandsbanki opnuðu í janúar 2009 Kvosina, viðskiptasetur í húsnæði Íslandsbanka í Lækjargötu.  Í Kvosinni fá einstaklingar og hópar aðstöðu til að vinna að viðskiptahugmyndum og stofna fyrirtæki undir faglegri umsjón sérfræðinga Impru á Nýsköpunarmiðstöð.

  • Skrifstofuaðstaða gegn vægu gjaldi
  • Fagleg ráðgjöf og stuðningur starfsmanna Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands
  • Skapandi umhverfi og öflugt tengslanet

Umsókn um aðstöðu

Í umsókninni þarf að koma fram stutt lýsing á viðskiptahugmyndinni, framtíðarsýn og húsnæðisþörf, ásamt ferilskrá eða upplýsingum um umsækjendur.