Beint á efnisyfirlit síðunnar
Samfélagsleg ábyrgð

Frumkvöðlasjóður

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka styrkir frumkvöðlaverkefni sem leggja áherslu á endurnýjanlega orku og sjálfbæran sjávarútveg. Markmið sjóðsins er að hvetja til nýsköpunar og þróunar á ofangreindum sviðum. Íslandsbanki greiðir 0,1% mótframlag í sjóðinn af innstæðu Vaxtasprota innlánsreikninga bankans á ársgrundvelli.

Frumkvöðlasjóður Íslandsbanka er mikilvægur vettvangur fyrir þróun framtíðarlausna til sjálfbærrar nýtingar og verndunar náttúruauðlinda. Sjóðurinn styrkir rannsóknir á sviði sjálfbærrar nýtingar orku og sjálfbærrar þróunar í sjávarútvegi og styðst við sérfræðiþekkingu starfsfólks Íslandsbanka við val á verkefnum.

Stjórn sjóðsins er tilnefnd af forstjóra Íslandsbanka og ber ábyrgð á að móta og taka ákvörðun um fjárfestingastefnu sjóðsins.

Stjórnina skipa

  • Árni Magnússon, framkvæmdastjóri Orkusviðs Íslandsbanka, stjórnarformaður
  • Rúnar Jónsson, viðskiptastjóri sjávarútvegs Íslandsbanka
  • Hjördís Björnsdóttir, sérfræðingur Markaðsdeild
  • Hólmfríður Einarsdóttir, markaðsstjóri Íslandsbanka
  • Már Másson, Samskiptasviði
  • Haraldur Örn Ólafsson, Lögfræðisviði

Sjóðurinn mun eiga frumkvæði að samstarfi í áhugaverðum verkefnum í samstarfi við útibú bankans. Umsækjendur leiti til síns viðskiptaútibús með viðskiptaáætlun og sendi umsókn um styrk í samstarfi við útibúið. Sjóðstjórn mun úthluta fé árlega til verkefna en einnig er heimilt að úthluta fé oftar ef sérstakt tilefni gefst til. Íslandsbanki leggur til stofnframlag og greiðir 0,1% mótframlag af innstæðu á Vaxtarsprota, reikningum bankans á ársgrundvelli.

Fyrirspurnir sendist á netfangið: islandsbanki@islandsbanki.is.