
Íslandsbanki tekur þátt í hvatningarátaki stjórnvalda og atvinnulífsins Allir vinna sem nýverið var hleypt af stokkunum. Bankinn mun bjóða einstaklingum í viðskiptum við bankann hagstæð framkvæmdalán á sérstökum kjörum:
Hámarkslán er 1,5 milljónir króna og er veitt gegn veði til viðskiptavina með trausta viðskiptasögu. Lán allt að 750 þúsund krónum eru veitt án veðs en að öðru leyti á sömu forsendum. Þessi lán eru veitt til framkvæmda eða endurbóta á fasteignum, lóðum eða sumarhúsum.
Afgreiðsla lánsins byggir á reikningum fyrir vöru- eða þjónustukaupum fram til 30. september.
„Við höfum lengi talað fyrir því að allir þurfi að leggjast á eitt við að koma hjólum atvinnulífsins aftur á fullt skrið. Við fögnum þessu átaki stjórnvalda og atvinnulífs sem við teljum jákvætt skref í þá átt. Við erum ánægð með að taka þátt í átakinu og okkar framlag eru lán á afar hagstæðum kjörum til góðra verka."
*Vextir skv. vaxtatöflu Íslandsbanka 1. júlí 2010. Vextir taka mið af kjörvöxtum óverðtryggðra skuldabréfalána en veittur er 2% vaxtafrádráttur af þeim.