
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Afrekskvennasjóð Íslandsbanka og ÍSÍ.
Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður í janúar 2007 með veglegu framlagi Íslandsbanka. Sjóðurinn er undir stjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands.
Markmiðið með stofnun sjóðsins er að efla afreksstarf kvennaíþrótta og mun virka sem hvatning og stuðningur við íþróttakonur í öllum íþróttagreinum. Stjórn sjóðsins er skipuð þremur konum sem tilnefndar eru af Íslandsbanka og ÍSÍ: Svafa Grönfeldt, Vanda Sigurgeirsdóttir og Þórdís Gísladóttir
Umsóknarfrestur rennur út miðvikudaginn 17. september.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og umsóknareyðublöð
Beint inn á vef ÍSÍ
Umsóknareyðublað
Hægt er að senda umsóknirnar, merktar Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ Engjavegi 6, 104 Reykjavík. Einnig er hægt að senda umsóknirnar rafrænt á orvar@isi.is.