
Vefur Íslandsbanka hefur verið tilnefndur til Íslensku vefverðlaunanna en Katrín Júlíusdóttir, iðnaðarráðherra, mun afhenda verðlaunin 12. febrúar nk. á uppskeruhátíð Samtaka vefiðnaðarins (SVEF). Verðlaunin verða afhent í Hugmyndahúsi Háskólanna, Grandagarði 2.
Íslandsbanki er tilnefndur í tveimur flokkum: "Besti sölu- og kynningarvefur fyrirtækis með yfir 50 starfsmenn" og "Besti hand-smátækja vefurinn".
Dómnefnd skipuð fagfólki í vefmálum hefur nú valið þá vefi sem komast í úrslit til þessara eftirsóttu verðlauna. Fjallað er um tilnefningar á vef SVEF.
Þetta er í níunda skipti sem verðlaunin eru afhent en fyrr um daginn stendur SVEF fyrir ráðstefnu um markaðsmál á netinu frá A-Ö.

