Sjóðir Íslandssjóða skila bestu ávöxtun ríkisskuldarbréfasjóða

Sjóðir Íslandssjóða skila bestu ávöxtun ríkisskuldarbréfasjóða

  • 04.02.2010

Ríkisverðbréfasjóðir Íslandssjóða, Ríkisskuldabréf- Sjóður 5 og Löng ríkisskuldabréf - Sjóður 7, hafa skilaðbestu ávöxtun sambærilegra sjóða yfir nánast öll samanburðartímabil miðað viðgengi 30. desember 2009. Þetta kemur fram í óháðum samanburði allraverðbréfasjóða á vefnum sjodir.is.

Íslensk skuldabréf - meðal löng ríkisskuldabréf
- ársávöxtun allra sjóða* 3 mán 6 mán 1 ár 2 ár 3 ár 4 ár 5 ár
Íslandsbanki: Sjóður 5 - ríkisskuldabréf 5,40% 9,60% 16,00% 22,20% 16,50% 14,30% 12,20%
Arion Banki: Ríkisverðbr.sj. -millilangur 5,00% 8,90% 14,50% 21,00% 15,80% 13,50% 11,40%
Landsbankinn: Sparibréf meðallöng 4,60% 7,80% 14,40% 6,70% 13,00% 11,70% 10,10%
Íslensk skuldabréf - löng ríkisskuldabréf
- ársávöxtun allra sjóða* 3 mán 6 mán 1 ár 2 ár 3 ár 4 ár 5 ár
Íslandsbanki: Sjóður 7 - löng ríkisskuldabréf 6,00% 11,20% 16,30% 23,50% 15,90% 13,80% 11,30%
Arion Banki: Ríkisverðbr.sj.- langur 5,90% 10,80% 15,50% 23,30% 15,90% 13,70% 11,00%
BYR: Skuldabréfasjóðurinn 5,70% 10,40% 17,00% 22,60% 15,70% 13,50% 11,30%
Landsbankinn: Sparibréf löng 5,20% 9,10% 15,90% 18,80% 13,60% 11,90% 10,10%

*M.v.gengi 30.12.2009. Ávöxtunartölur miðast við nafnávöxtun sjóða. Ávöxtun umfram12 mánuði er umreiknuð í ávöxtun á ársgrundvelli. Styttri tímabil eru ekkiumreiknuð.

Í samanburðinum kemur fram aðRíkisskuldabréf - Sjóður 5, sem fjárfestir í meðallöngum ríkisskuldabréfumhefur náð betri ávöxtun en allir sambærilegir sjóðir síðustu 5 ár og er þá samatil hvaða tímabils er horft. Einnig sést að Löng ríkisskuldabréf -Sjóður 7 hefur sýnt einna bestu ávöxtun eigna síðustu 5 árin meðalsambærilegra sjóða, miðað við gengi sjóðanna 30.12. 2009.

Síðastliðið ár var hagstætt verðbréfasjóðumsem fjárfesta í ríkisskuldabréfum. Lækkandi ávöxtunarkrafa á markaði leiddi tilhækkandi verðs ríkisverðbréfa og hárrar ávöxtunar á verðbréfasjóðum semfjárfesta í ríkisskuldabréfum. Verðtryggðir skuldabréfasjóðir hafa notiðvaxandi vinsælda undanfarið enda eru þeir leið fyrir fjárfesta til að fáverðtryggingu á eign sína án þess að binda þurfi upphæðina í mjög langan tíma.

Ríkisskuldabréf - Sjóður 5 og Löngríkisskuldabréf - Sjóður 7 eru verðbréfasjóðir skv. lögum nr. 30/2003 umverðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Sjóður 5 hefur verið starfræktur síðanárið 1990 og Sjóður 7 frá árinu 1997. Sjóðirnir eru með stærstu sjóðum sinnartegundar á Íslandi, samtals yfir 50 milljarðar. Rekstraraðili sjóðanna erÍslandssjóðir hf., dótturfélag Íslandsbanka hf. Útboðslýsingu og nánariupplýsingar er hægt að nálgast á vef Íslandssjóða hf., islandssjodir.is. Fjárfestar eruhvattir til að kynna sér útboðslýsingu sjóðanna og þá sérstaklega umfjöllun umáhættuþætti, fjárfestingarstefnu og vikmörk.

Til baka