
Ólafur Þór Jóhannesson hefur verið ráðinnframkvæmdastjóri Miðengis ehf., eignaumsýslufélags Íslandsbanka, frá og með 1.febrúar 2010. Ólafur Þór erviðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og löggiltur endurskoðandi. Ólafur Þór starfaði á árunum 1996-2006 hjáPricewaterhouseCoopers þar sem hann var meðeigandi frá árinu 2003. Ólafur Þór sinnti jafnframt kennslustörfum íreikningshaldi við Háskólann í Reykjavík á árunum 2000-2006. Frá árinu 2006 hefur Ólafur Þór starfað semframkvæmdastjóri fjármálasviðs Teymis hf. Hann er kvæntur Aldísi Arnardóttur og eiga þau þrjú börn.
Ríkharð Ottó Ríkharðsson, sem sinnt hefurstarfi framkvæmdastjóra tímabundið meðfram öðrum verkefnum, mun áfram starfa ísérlánateymi Íslandsbanka.
Staða framkvæmdastjóra var auglýst í byrjundesember 2009 og voru umsækjendur um 70. Það var Mannauðssvið Íslandsbanka semsá um ráðningarferlið.