Íslandsbanki

Íslandsbanki lækkar vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum

Íslandsbanki lækkar vexti á óverðtryggðum húsnæðislánum

Íslandsbanki lækkar vexti frá og með deginum í dag, 1. febrúar 2010, á óverðtryggðum húsnæðislánum og óverðtryggðum kjörvöxtum skuldabréfalána í kjölfarið á lækkun stýrivaxta Seðlabankans í síðustu viku.  Kjörvextir óverðtryggðra skuldabréfalána lækka um 0,25% og eru nú 8,75% og breytilegir vextir óverðtryggðra húsnæðislána lækka um 0,5% og eru nú 8,0%.

Vextir lækka á húsnæðislánum með höfuðstólslækkun

Íslandsbanki býður viðskiptavinum sínum höfuðstólslækkun á erlendum og verðtryggðum húsnæðislánum gegn því að lánunum sé breytt í óverðtryggð lán í íslenskum krónum.  Síðan bankinn hóf að bjóða þetta úrræði í nóvember síðastliðnum hafa verið gerðar þrjár breytingar á vöxtum útlána. Breytilegir vextir þessara lána hafa því lækkað úr 7,5% í 6,0% á tímabilinu að teknu tilliti til tveggja prósentustiga afsláttar sem veittur er fyrsta árið eftir höfuðstólslækkun.

Hægt er að nálgast nýja vaxtatöflu Íslandsbanka sem gildir frá og með 1. febrúar á vef bankans.

Til baka