
Kosin hefur verið ný sjö manna stjórn í Íslandsbanka. Sex stjórnarmanna eru skipaðir afeignarhaldsfélaginu ISB Holding ehf., sem er í eigu Glitnis banka hf. sem fer með 95% eignarhlut í Íslandsbanka.Bankasýsla ríkisins hefur skipað einn fulltrúa í stjórn samkvæmt tillögumvalnefndar.
Skilanefnd Glitnis bankahf., fyrir hönd kröfuhafa, ákvað þann 15. október s.l. að eignast 95% hlut íÍslandsbanka á móti 5% hlut ríkisins. Þau sem nú hafa verið kosin í stjórn bankans hafa öll mikla reynslu afviðskiptum, fjármálamarkaði og stjórnun fyrirtækja.
Á hluthafafundi sem haldinn var í dag, 25. janúar 2010 var Friðrik Sophusson, fyrrverandi fjármálaráðherraog forstjóri Landsvirkjunar, kjörinnstjórnarformaður en samþykktir félagsins kveða á um að hluthafafundur kjósistjórnarformann sérstaklega.
Eftirfarandisex stjórnarmenn hafa verið tilnefndir af hálfu ISB eignarhaldsfélags Glitnisbanka:
Neil Graeme Brown
Neil Graeme Brown er breskur ríkisborgari og hefuryfirgripsmikla reynslu á sviði fjármálastarfsemi og endurskipulagningaralþjóðlegra fyrirtækja. Neil Brown hefur m.a. starfað sem yfirmaðurfjármálaþjónustu Apax Partners. Hann var meðeigandi endurskoðunar skrifstofuCoopers og Lybrand (Nú PwC) í London 1990 - 1996 og hefur víðtæka þekkingu ásviði yfirtöku og samruna fyrirtækja í Bandaríkjunum og Evrópu. Brown hefurkomið að skráningu fjölda fyrirtækja í Kauphöllina í London sem og á Nasdaq ogsetið í stjórnum fjölda fyrirtækja á sviði fjárfestinga og fjármála.
Neil Brown hefur MA gráðu frá Emmanuel College Cambridge oger löggiltur endurskoðandi.
John E. Mack
John E. Mack er Bandaríkjamaður og hefur mikla þekkinguog reynslu á sviði alþjóðlegrar banka- og fjármálaþjónustu sem og á sviðiyfirtöku og samruna fyrirtækja. Þá hefur hann nokkra sérþekkingu á sviðiinnleiðingar góðra stjórnarhátta fyrirtækja (Corporate Governance). John Mackvar forstjóri og fjármálastjóri hjá Shinsai Bank í Tokyo frá 2002-2005 en þarleiddi hann m.a. skráningu bankans á hlutabréfamarkað.
John Mack starfaði hjá Bank of America og tengdumfélögum á árunum 1978-2001, síðast sem yfirmaður fjármögnunar móðurfélagsbankans. Þá var hann einnigforstjóri fyrirtækisins StrategicSolutions, sem er að meirihluta í eigu Bank of America, en það fyrirtækisérhæfir sig í kaupum og úrvinnslu erfiðra krafna og útlána.
John Mack ermeð MBA gráðu frá The Virginia Darden School of Business.
RaymondJ. Quinlan
Ray J. Quinlan er Bandaríkjamaður og hefur starfað þar áfjármálamarkaði um áratugaskeið. Hann starfaði hjá Citibank og félögum tengdumbankanum frá 1983 - 2007. Ray Quinlan var stjórnarformaður og forstjóriviðskiptabankasvið Citibank í Norður-Ameríku á árunum 2005-2007 og var ábyrgurfyrir rekstri um 3500 útibúa. Þar á undan, á árunum 2002-2005, stýrði Quinlan og bar ábyrgð á öllumyfirtökum og samrunum sem bankinn og dótturfélög hans komu að. Þá var hann umskeið forstjóri alþjóðlegrar kreditkortadeildar bankans og fjármálastjóriCitibank í Norður-Ameríku.
Ray Quinlan er með M.Phil og Ph.D. gráður í hagfræði frá TheGraduate School and University Center of the City University of New York, og MBAgráður frá Columbia University og The New York University, Stern School ofBusiness.
FriðrikSophusson
Friðrik Sophusson hefur víðtæka reynslu og þekkingu ásviði efnahagsmála og stjórnunarfyrirtækja og hefur gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir fyrirtæki, stofnanirog félagasamtök. Friðrik varframkvæmdastjóri Stjórnunarfélags Íslands frá árinu 1972 til 1978 þegar hanntók sæti á Alþingi. Hann gegndi þingmennsku um tuttugu ára skeið eða allt tilársins 1998. Friðrik átti sæti í ríkisstjórn árin 1987 - 1988, þá sem iðnaðarog orkumálaráðherra og síðar sem fjármálaráðherra 1991 - 1998. Árið 1999 tókFriðrik við starfi forstjóra Landsvirkjunar sem hann gegndi í tæp 11 ár. Friðrik hefur sinnt fjöldatrúnaðarstarfa og átt sæti í stjórnum fjölmargra fyrirtækja og stofnana.Þeirra á meðal eru seta í bankaráðiLandsbankans á árunum 1990 - 1992, seta í stjórnum Pharmaco, Viðskiptaráðs,Enex, Samorku, Nordel og Eurelectric, samtaka evrópska raforkuiðnaðarins.Friðrik Sophusson var um árabil varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Friðrik er með embættispróf frá lagadeild HáskólaÍslands.
Marianne Økland
Marianne Økland er norskur ríkisborgari og starfar í dag semframkvæmdastjóri Avista Partners sem sérhæfir sig í ráðgjöf á sviðiskuldabréfaútgáfu og fjármögnunar. Marianne starfaði hjá JP Morgan árunum1998-2007, m.a. sem sérfræðingur á sviði skuldabréfafjármögnunar fyrirtækja ogfjármálastofnana á. Á árunum 1994-1998 starfaði hún við skuldabréfafjármögnunhjá Union Bank of Switzerland (UBS).
Marianne hefur einnig reynslu á sviði ráðgjafar en hún starfaði semráðgjafi hjá ráðgjafafyrirtækinu Marsoft Limited á árunum 1988-1993, enfyrirtækið sérhæfir sig ráðgjöf tengdri fjárfestingum í skipaiðnaði.
Marianne Økland er með M.Sc. gráðu í fjármálum, hagfræðiog stærðfræði frá Norwegian School of Economis and Business Administration þarsem hún starfaði við rannsóknir og kennslu um nokkurt skeið.
ÁrniTómasson
Árni Tómasson hóf störf við endurskoðun árið 1979 og hefur starfað viðendurskoðun banka og fjármálafyrirtækja frá árinu 1985. Hann var meðeigandi ogsíðar stjórnarformaður hjá Deloitte hf. til ársins 2001, var formaður Félagslöggiltra endurskoðenda og forseti Norðurlandasambands endurskoðenda. Árnihefur stundað kennslu í meistaranámi við Háskólann í Reykjvík og áður í HáskólaÍslands samtals í yfir 20 ár og hefur gegnt formennsku í prófnefndendurskoðenda sl. 6 ár. Árni starfaði sem bankastjóri Búnaðarbankans frá2001-2003, en hefur frá þeim tíma starfað við eigið ráðgjafarfyrirtæki. Árnivar skipaður formaður skilanefndar Glitnis banka hf. í október 2008 og hefurleitt starfsemi nefndarinnar og samninga kröfuhafa Glitnis við íslenska ríkiðfrá þeim tíma.
Árni Tómasson er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslandsog löggiltur endurskoðandi.
Fulltrúitilnefndur af Bankasýslu ríkisins samkvæmt tillögum valnefndar:
Martha Eiríksdóttir, Cand. Oceon og B.Ed.
Martha Eiríksdóttir er sjálfstætt starfandi verkefnastjóri. Hún starfaðisem yfirmaður viðskiptatengsla og markaðsmála hjá Landsneti hf. á árunum2003-2009. Á árunum 2001-2003 var hún framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðsÍslandssíma hf. Martha starfaði sem deildarstjórihjá Europay International í Belgíu um sex ára skeið, frá 1994-2000 en hún hafðiáður starfað sem forstöðumaður markaðssviðs Kreditkorts hf. á Íslandi. Þá varMartha forstöðumaður markaðssviðs Útvegsbankans á árunum 1988-1990. Martha tóksæti í bankastjórn Íslandsbanka í febrúar 2009 og er varaformaður stjórnar, húnvar stjórnarformaður Kreditkorts hf. 2008-2009 og hefur setið stjórn IcelandairGroup frá 2006.
Martha er Cand. Oceon frá Háskóla Íslands og B.Ed. fráKennaraháskóla Íslands.