Mikil eftirspurn eftir námskeiðum um Meniga heimilisbókhaldið
Íslandsbanki hélt nýlega fjölsótt námskeið undir heitinu „Fjármálin þín" þar sem Þór Clausen frá Háskólanum í Reykjavík og Halldóra Gyða Matthíasdóttir útibússtjóri Íslandsbanka í Garðabæ fóru yfir mikilvæg atriði í fjármálum einstaklinga. Á þessum námskeiðum komu fram óskir um að halda sérstök námskeið um Meniga heimilisbókhaldið, sem Íslandbanki hefur boðið viðskiptavinum aðgang að síðan árið 2009 í gegnum Netbanka sinn.
Í kjölfarið var ákveðið að setja upp tvö slík námskeið, sem haldin voru fimmtudagana 24. nóvember og 1. desember. Bæði námskeiðin fylltiust á 2-3 dögum og því er ljóst að áhugi fyrir Meniga heimilisbókhaldinu er mikill. Því hefur verið ákveðið að bjóða upp á fleiri námskeið í upphafi næsta árs þegar Meniga verður orðið hluti af Netbanka Íslandsbanka.
Viðskiptavinir geta forskráð sig á námskeiðin á vef Íslandsbanka, en nánari tímasetningar verða auglýstar þegar nær dregur.
Forskrá mig á Meniga námskeið í janúar.
Til baka
