Afkoma Íslandsbanka á fyrri hluta ársins 2010
Afkoma Íslandsbanka á fyrsta árshluta 2010 var samkvæmt könnuðum árshlutareikningi jákvæð um 8,3 milljarða króna og er tekjuskattur tímabilsins áætlaður 2.347 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall bankans var 21,5% sem er talsvert hærra en það 16% lágmark sem FME hefur sett bankanum. Arðsemi eigin fjár var 17,1%.
Helstu niðurstöður
- Rekstrarniðurstaða var jákvæð um 8,3 ma. kr. eftir skatta og er tekjuskattur áætlaður 2,3 ma. kr.
- Hreinar vaxtatekjur námu 20,3 ma. kr.
- Hreinar þóknanatekjur námu 3,3 ma. kr.
- Meðal stöðugildi samstæðunnar á tímabilinu voru 1.152.
- Heildarstærð efnahagsreiknings þann 30.06.10 var 699,8 ma.kr.
- Heildarútlán til viðskiptavina og fjármálafyrirtækja námu um 570 ma. kr. og innlán námu um 458 ma. kr. í lok tímabilsins.
- Eigið fé í lok tímabilsins nam 100,4 ma. kr.
- Eiginfjárhlutfall (CAD) við lok tímabilsins var 21,5%.
- Vaxtamunur af meðalstöðu heildareigna var 5,7%.
- Hlutfall heildarinnlána af heildarútlánum var 80,3% í lok tímabilsins.
- Arðsemi eigin fjár fyrir tímabilið var 17,1% á ársgrundvelli.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka
„Rekstur bankans gekk vel á fyrri helmingi ársins og var nokkuð í takt við áætlanir. Eiginfjárstaða bankans er afar sterk eða 21,5% sem er vel yfir 16% lágmarkskröfu Fjármálaeftirlitsins. Það er ljóst að bankinn hefur þannig allar forsendur til að koma í auknu mæli að fjármögnun atvinnulífsins á Íslandi.
Vissulega hefur réttaróvissa um lögmæti og vaxtakjör lána í erlendri mynt sett mark sitt á uppgjörsvinnu bankans og hefur Íslandsbanki gert úttekt á hugsanlegum áhrifum ólíkra niðurstaðna í því máli. Sú úttekt leiðir í ljós að ef svo ólíklega fer að öll lán í erlendri mynt verði dæmd ólögleg getur höggið á eiginfjárgrunn bankans orðið verulegt. Verði það niðurstaðan mun Íslandsbanki eigi að síður vera með eiginfjárhlutfall yfir 12% sem er vel yfir lögbundnu lágmarki. Slík niðurstaða myndi þó skerða verulega möguleika bankans til að þjónusta heimili og fyrirtæki og veita fjármunum til fjárfestinga og þar með taka þátt í endurreisn atvinnulífsins."
Til baka