Beint á efnisyfirlit síðunnar Netbanki Íslandsbanka
Fréttir

Íslandsbanki gefur út skýrslu um áhættustýringu og áhættumat

05.04.2011

Íslandsbanki hefur gefið út nýja skýrslu með ítarefni um áhættustýringu og áhættumat. Skýrslunni er ætlað að auka gagnsæi um áhættu bankans í starfsemi sinni, t.a.m. áhættu sem felst í breytingum á virði eigna, samsetningu skulda og aðra áhættu í daglegum rekstri bankans. Að auki er henni ætlað að stuðla að gagnsæi og veita mörkuðum betri og ítarlegri upplýsingar um áhættumynstur bankans. Í skýrslunni eru meiri upplýsingar s.s. um lánasafn, innlán og um lausafjárhlutföll, en slíkar upplýsingar hafa ekki verið birtar áður.

Skýrslan er gefin út á ensku og nefnist „Risk Book 2010". Skýrslan er liður í að fullnægja þriðju stoð Basel II reglna um fjármálastarfsemi og á sér fyrirmyndir hjá mörgum erlendum bönkum. Þetta er í fyrsta sinn sem Íslandsbanki gefur út skýrslu af þessu tagi. Ætlunin er að birta þessa skýrslu árlega og að upplýsingagjöfin í skýrslunni þróist enn frekar þegar fram líða stundir.

Skýrsluna má nálgast á vef Íslandsbanka: islandsbanki.is/riskbook

„Íslandsbanki leggur mikla áherslu á gagnsæi í störfum sínum og það er sérstaklega ánægjulegt að ríða á vaðið með að gefa út sérstaka skýrslu um áhættustýringu og áhættumat. Við teljum að markaðir muni hafa gagn af skýrslunni og að hún muni varpa ljósi á áhættuþætti í starfsemi okkar sem og með hvaða hætti bankinn tekst á við það óvissuástand sem ríkir á fjármagnsmörkuðum. Lesendur skýrslunnar eiga að geta séð að bankinn stendur á traustum grunni, þrátt fyrir aðstæður."

Til baka

Eldri fréttir