Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka lokið
Tæplega þrjú þúsund hlauparar voru ræstir út við útibú Íslandsbanka í Lækjargötu á slaginu 8:40. Þá ræsti Kári Steinn Karlsson, maraþonhlaupari og Ólympíufari, maraþonið, hálfmaraþonið og boðhlaupið af stað. Blíðskaparveður var í miðborginni og myndaðist mikil stemming meðal hlaupara og áhorfenda þegar hlaupið hófst.
Yfir 13.000 manns tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka í ár sem er þátttökumet. 807 hlauparar hlupu heilt maraþon en í fyrra hlupu 684 þá vegalengd sem var þátttökumet. Tæplega tvö þúsund manns hlupu hálft maraþon og er það nokkuð svipaður fjöldi og á síðasta ári. Þá eru einnig 30 lið í boðhlaupinu.
Arnar Pétursson sigraði maraþonið annað árið í röð. Hann bætti tímann sinn um rúmar 3 mínútur frá síðasta ári og hljóp á 02:41:02. Mary Brown kom fyrst í mark í kvenna á 3:04:03. Þorbergur Ingi Jónsson kom fyrstur í mark á 1:09 í hálfmaraþoni en Marta Ernstdóttir kom í mark fyrst kvenna á 1:23.
Erlendir hlauparar hafa aldrei verið fleiri í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka en þeir voru tæplega 1.600 talsins og af 61 þjóðerni. Í fyrra hlupu 1.400 erlendir hlauparar sem var met. Þá voru erlendir stjórnarmenn Íslandsbanka og fjölskyldur þeirra með í hlaupinu en vel á fjórða hundrað starfsmenn bankans tóku þátt í hlaupinu.
Áheitasöfnunin hefur gengið mjög vel og slegið fyrri met. Á sama tíma í fyrra höfðu safnast 37,5 milljónir króna, en þegar hlaupið hófst stóð söfnunin í tæpum 40 milljónum króna. Hægt er að heita á hlaupara til miðnættis á mánudag á vefnum hlaupastyrkur.is og því er ekki útilokað að heildaráheitafjárhæðin muni hækka töluvert.
