Um 50% aukning áheita á hlaupastyrkur.is
Áheitasöfnun fyrir góðgerðarfélög í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer vel af stað og eru áheit á keppendur í gegnum vefinn www.hlaupastyrkur.is þegar orðin tæplega 7 milljónir króna. Þetta er rúmlega 50% aukning frá sama tíma á síðasta ári. Það stefnir því í að meiri fjármunir renni til góðra málefna nú en á síðasta ári þegar söfnuðust 43,6 milljónir króna til tæplega 140 góðgerðarfélaga. Rúmlega 1.400 hlauparar hafa nú skráð sig á hlaupastyrk og eru að safna áheitum. Sá einstaklingur sem hefur nú safnað mest á vefnum hefur náð tæpri hálfri milljón til handa Mænuskaðastofnun Íslands.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram þann 18. ágúst næstkomandi. Hægt er að skrá sig í hlaupið á www.marathon.is og byrja að safna áheitum á hlaupastyrkur.is.
Til baka
