Útlán ERGO tvöfölduðust milli ára og aukast enn
Útlán ERGO tvöfölduðust milli áranna 2010 og 2011. Í byrjun júlí á þessu ári hafði ERGO veitt jafn mikið af nýjum útlánum og allt árið 2011. Á síðasta ári fjármagnaði ERGO 12,6 milljarða, þar af um þrjá milljarða til einstaklinga og hefur fjármagnað yfir 13 milljarða í ár. Á síðustu 18 mánuðum hefur ERGO fjármagnað bíla og tæki fyrir 25 milljarða króna en stærsti hluti lánanna er óverðtryggður.
